Íslenski fáninn að húni fyrir upphaf kjörfundar í Grundaskóla á Akranesi í gærmorgun, fjölmennasta sveitarfélaginu í NV kjördæmi. Blankalogn að morgni og gott veður var allan daginn. Ljósm. mm

Þjóðin hafnaði áframhaldi viðræðna við ESB

Landsmenn gengu að kjörborðinu í gær og kusu í þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu ríkisstjórnarinnar um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ágæt kjörsókn var og veðrið lék við landsmenn. Alls kusu 82,5% landsmanna en það er betri kjörsókn en var í alþingiskosningum 2024, þegar 80,2% nýttu kosningaréttinn. Niðurstaðan var sú að viðræðum við ESB var hafnað. Á landsvísu var niðurstaðan 52,8% Nei og 47,2% Já. Auðir og ógildir seðlar í kosningunum voru 0,7%. Já kusu 105.339 en Nei kusu 118.040. 12.701 fleiri voru því á móti aðildarviðræðum.

Verulegur munur var á afstöðu fólks eftir búsetu. Þannig var andstaðan gegn aðildarviðræðum mest í Norðvesturkjördæmi, þá Norðausturkjördæmi, Suðurkjördæmi og loks í Suðvesturkjördæmi (Kraganum). Í Reykjavíkurkjördæmunum báðum var tillagan samþykkt með 54,5% og 57,5% atkvæða, en í Suðvesturkjördæmi sögðu 53% kjósenda nei.

Í Norðvesturkjördæmi var andstaðan mest við aðildarviðræður. 62,9% íbúa voru þeim mótfallnar en 37,1% fylgjandi. Já sögðu 7.060 en nei 11.953. Auðir og ógildir seðlar voru 142 í kjördæminu, eða 0,7% atkvæða.