Fréttir

true

Hvetja til áframhaldandi hreinsunarátaks á Skipavíkursvæðinu

Sveitarfélagið heldur áfram átaki sínu til að bæta umgengni á atvinnusvæðum og hefur nú komið fyrir gámi á Skipavíkursvæðinu þar sem eigendum lausamuna gefst kostur á að losa sig við málma og járn. Átakið er framhald af hreinsunarverkefni sem ráðist var í á Reitarvegi fyrr á árinu og miðar að því að fegra umhverfið og…Lesa meira

true

Nýr forstöðumaður íþrótta- og frístundamála í Hvalfjarðarsveit

Helgi Óttarr Hafsteinsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns íþrótta- og frístundamála hjá Hvalfjarðarsveit og mun hefja störf í ágúst. Í starfinu mun Helgi Óttarr bera ábyrgð á faglegri forystu og þróun íþrótta- og frístundastarfs sveitarfélagsins auk reksturs Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar Hvalfjarðarsveitar. Helgi Óttarr er með tvær meistaragráður, annars vegar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði…Lesa meira

true

Ungmenni fegruðu nærumhverfið í Dalabyggð í sumar

Starfsemi vinnuskólans í Dalabyggð lauk í vikunni eftir annasamt sumar þar sem hópur ungmenna lagði sitt af mörkum við að fegra og snyrta nærumhverfi sitt. Með fjölbreyttum verkefnum hafa þau átt þátt í að bæta ásýnd sveitarfélagsins og skapa snyrtilegra umhverfi íbúum og gestum til ánægju. Í sumar sinntu þátttakendur meðal annars hreinsun og umhirðu…Lesa meira

true

Tillaga um upplifunarmiðstöð á Fellsenda auglýst

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 fyrir jörðina Fellsenda. Breytingin gerir ráð fyrir nýju verslunar- og þjónustusvæði þar sem reist verði upplifunarmiðstöð með fornbílasafni sem meginkjarna, ásamt veitingarekstri, gistingu og fjölbreyttri afþreyingu. Skipulagstillagan nær til um 16 hektara hluta af jörðinni Fellsenda sem alls er 256,3 hektarar að…Lesa meira

true

Kári féll úr Gatorade bikarnum í æsispennandi vítaspyrnukeppni

Kormákur/Hvöt tryggði sér sæti í átta liða úrslitum í Gatoradebikarnum eftir dramatískan sigur á Kára frá Akranesi á Blönduósvelli sl. miðvikudagskvöld. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu tókst að gera út um leikinn í venjulegum leiktíma og framlengingu. Skagamenn komust í 1:0 á 20. mínútu með marki frá Benedikt Ísar…Lesa meira

true

Skallagrímur með góðan sigur á toppliði Smára

Skallagrímur vann mikilvægan 3:2 sigur á toppliði Smára úr Kópavogi þegar liðin mættust í toppslag A-riðils 5. deildar karla í Borgarnesi í gær. Með sigrinum er Skallagrímur kominn í titilbaráttu riðilsins, en liðið varð jafnframt það fyrsta til að leggja Smára að velli á tímabilinu. Gestirnir byrjuðu betur og komust yfir á 19. mínútu þegar…Lesa meira

true

Messa og samvera í Grensási

Messa var haldin á skógræktarsvæðinu Grensási við Stykkishólm síðdegis í gær. Sóknarpresturinn séra Hilda María Sigurðardóttir leiddi messuna og fjölmenni á öllum aldri tók þátt í samverustundinni. Að messu lokinni var boðið upp á grillaðar pylsur sem fengu góðar undirtektir meðal gesta. Veðrið var með besta móti mestallan tímann og þótt örlítil væta léti á…Lesa meira

true

Hvöss sunnanátt um norðvestanvert landið

Um norðavestanvert landið er spáð hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður í sunnanátt geta staðbundið orðið allt að 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar. Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.Lesa meira

true

Sturluhátíð er á morgun

„Eitt tilhlökkunarefni hvers sumars er Sturluhátíðin, sem ár hvert er haldin annan laugardag í júlí sem að þessu sinni ber upp á 11. júlí nk. Sturluhátíðin er kennd við sagnaritarann Sturlu Þórðarson sem bjó á Staðarhóli, Saurbæ í Dölum. Hátíðin sjálf verður í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal. Undanfarin ár hefur hún verið ótrúlega fjölsótt;…Lesa meira

true

Þverá örugg í efsta sætinu

Veiðitölur eru farnar að berast úr laxveiðiánum. Á vef Landssambands veiðifélaga gengur reyndar treglega að fá inn tölur frá mörgum laxveiðiám. Engu að síður vitum við að veiðin hefur lagast í mörgum þeirra, sérstaklega á Vestur- og Suðurlandi. Þverá í Borgarfirði er örugg í efsta sætinu núna. „Það eru komnir 550 laxar hjá okkur í…Lesa meira