
Tillaga um upplifunarmiðstöð á Fellsenda auglýst
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 fyrir jörðina Fellsenda. Breytingin gerir ráð fyrir nýju verslunar- og þjónustusvæði þar sem reist verði upplifunarmiðstöð með fornbílasafni sem meginkjarna, ásamt veitingarekstri, gistingu og fjölbreyttri afþreyingu. Skipulagstillagan nær til um 16 hektara hluta af jörðinni Fellsenda sem alls er 256,3 hektarar að stærð, liggur að norðanverðu Akrafjalli frá efstu brún og niður að Eiðisvatni. Væntanleg uppbygging á jörðinni felst í byggingu fyrir bílasafn og í tengslum við safnið er stefnt að fjölbreyttri afþreyingu á svæðinu fyrir heimafólk og ferðamenn. Skessuhorn hefur áður fjallað um þessi áform í viðtali við Gunnar Þór Gunnarsson eiganda jarðarinnar.