Fréttir

true

Hvalvertíð er hafin

Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 sigldu á miðin á föstudagskvöld. Fyrstu hvalirnir voru veiddir um helgina og kom annað skipið með tvo hvali að landi í nótt og hófst þá hvalskurður. Tvö ár eru síðan hvalur var síðast veiddur og verkaður í Hvalstöðinni. Nú er leyfi til veiða á 150 langreyðum við Íslandsstrendur. Hátt…Lesa meira

true

Naumt tap hjá Víkingi Ó á útivelli

Víkingur Ólafsvík sótti Hauka heim í 9. umferð 2. deildar karla á laugardaginn á Birtu vellinum í Hafnarfirði. Haukar sitja á toppi deildarinnar með 19 stig en Víkingur er í níunda sæti með 11 stig eftir leikinn, sem Víkingur tapaði naumlega 1:0. Þó munur sé á liðunum á stiga töflunni þá var hann ekki sýnilegur…Lesa meira

true

Skallagrímur með stórsigur gegn Uppsveitum

Skallagrímur og Uppsveitir áttust við í 5. deild karla í knattspyrnu á Skallagrímsvelli á laugardaginn. Þar vann Skallagrímur stórsigur á Uppsveitum 4-0. Fyrstu tvö mörk Skallagríms komu í fyrri hálfleik; á 28. og 32. mínútu en hin tvö komu annars vegar snemma í síðari hálfleik og hins vegar á lokamínútu venjulegs leiktíma. Einungis tveimur mínútum…Lesa meira

true

Fjólubláir bekkir við Brákarhlíð

Í sveitarfélögum víða um land má finna fjólubláa bekki merkta Alzheimersamtökunum. Þeim er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu. Fjólublár er alþjóðlegur litur vitundarvakningar um heilabilun og hefur því orðið tákn um fræðslu, skilning og stuðning við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.…Lesa meira

true

Slitnir strengir starta Írskum dögum

Tónleikar fiðlusveitarinnar Slitinna strengja munu að þessu sinni marka upphaf Írskra daga, bæjarhátíðar á Akranesi. Tónleikarnir verða haldnir í Guinnes tjaldinu á hafnarsvæðinu þriðjudagskvöldið 30. júní klukkan 20. Ragnar Skúlason er hljómsveitarstjóri Slitinna strengja en sveitin var upphaflega stofnuð af hópi fyrrum fiðlunemenda hans við Tónlistarskólann á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Ragnari, en…Lesa meira

true

Lágur þrýsingur á neysluvatni í kvöld

Að kvöldi 22. júní verður nýr búnaður tekinn í notkun á Akranesi Veitur hafa lokið endurnýjun lýsingartækja fyrir neysluvatn á Akranesi og nú er komið að því að taka nýju tækin í notkun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að til að koma nýju tækjunum í virkni þarf tímabundið að minnka þrýsting á köldu vatni…Lesa meira

true

Knattspyrnufélagið Kári gerði góða ferð í Voga

Föstudaginn 19. júní áttust við Kári og Þróttur V á Vogaídýfuvellinum á Vatnsleysuströnd í 2. deild karla í knattspyrnu, en þetta var 9. umferð deildarinnar. Káramenn hófu leika af krafti og á 19. mínútu var Finnbogi Laxdal búinn að skora fyrsta mark leiksins og leiddu Káramenn með einu marki eftir fyrri hálfleik. Mörkin komu síðan…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning til styrktar Grundarfjarðarkirkju

Sigríður Diljá Guðmundsdóttir, kvenfélagskona og bóndi í Nýjubúð, hélt ljósmyndasýningu í Samkomuhúsi Grundarfjarðar í síðustu viku. Sýningin var opnuð á þjóðhátíðardaginn og stóð fram yfir helgina. Myndirnar voru til sölu og rann allur ágóði til Grundarfjarðarkirkju þar sem verið er að safna fyrir nýju þaki. Einnig var hægt að kaupa dýrindis vöfflur og kaffi til…Lesa meira

true

Tvær lúxussnekkjur í heimsókn í Grundarfirði

Grundfirðingar ráku upp stór augu þegar þeir litu til hafs í gærkvöldi þegar snekkjurnar Emotional og After You sigldu inn lygnan fjörðinn og lögðust við ankeri rétt utan við bæinn. Ekki hefur útsýnið spillt upplifun áhafnar skipanna en þær eru báðar í eigu sama eiganda. Emotional er skráð á Marshall eyjum og er 53 metrar…Lesa meira

true

Stofnun atvinnuveganna varð að lögum

Alþingi samþykkti á lokadegi þinghalds frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um nýja Stofnun atvinnuveganna. Lögin munu taka gildi 1. janúar 2027 og tekur stofnunin þá til starfa. Með lögum um Stofnun atvinnuveganna verður til ný ríkisstofnun sem mun sinna þeim verkefnum sem áður voru hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem þau verkefni…Lesa meira