Liðsmenn Kára í útivallarbúningnum sínum. Ljósm. Kári

Knattspyrnufélagið Kári gerði góða ferð í Voga

Föstudaginn 19. júní áttust við Kári og Þróttur V á Vogaídýfuvellinum á Vatnsleysuströnd í 2. deild karla í knattspyrnu, en þetta var 9. umferð deildarinnar. Káramenn hófu leika af krafti og á 19. mínútu var Finnbogi Laxdal búinn að skora fyrsta mark leiksins og leiddu Káramenn með einu marki eftir fyrri hálfleik. Mörkin komu síðan með jöfnu millibili í seinni hálfleik; Marinó Hilmar skoraði á 50. mínútu, Benedikt Ísar bætti við þriðja markinu á 78. mínútu og loks skoraði Matthías Daði fjórða mark Kára á 86. mínútu. Þróttur í Vogum náði að klóra í bakkann rétt fyrir leiks lok með marki Danny De Lorjin á 88. mínútu og úrslitin ráðin. Endaði leikurinn 4-1 fyrir Kára sem er nú í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, þremur stigum á eftir Haukum.