Hluti Slitinna strengja ásamt Ragnari, en myndin var tekin á Írskum dögum á síðasta ári.

Slitnir strengir starta Írskum dögum

Tónleikar fiðlusveitarinnar Slitinna strengja munu að þessu sinni marka upphaf Írskra daga, bæjarhátíðar á Akranesi. Tónleikarnir verða haldnir í Guinnes tjaldinu á hafnarsvæðinu þriðjudagskvöldið 30. júní klukkan 20. Ragnar Skúlason er hljómsveitarstjóri Slitinna strengja en sveitin var upphaflega stofnuð af hópi fyrrum fiðlunemenda hans við Tónlistarskólann á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Ragnari, en æfingar hafa verið haldnar nokkuð stíft að undanförnu enda styttist í viðburðinn.

„Það má eiginlega segja að hér sé á ferðinni endurkoma hljómsveitarinnar, því við höfum ekki haldið sjálfstæða tónleika frá árinu 2019 þegar við spiluðum síðast á Gamla kaupfélaginu. Svo vorum við með aðra tónleika í undirbúningi þegar Covid faraldurinn skall á þannig að þeir féllu niður. Við höfum engu að síður haldið hópinn og hist á þessum sjö árum, en aldrei til að halda sjálfstæða tónleika fyrr en nú,“ segir Ragnar. „Tengslin hjá okkur hafa því aldrei rofnað. Við tókum svo þátt í dagskrá Írskra daga árið 2024 og spiluðum með hljómsveit. Svo á Írskum dögum á síðasta ári vorum við sérstakir gestir á tónleikum sem nefndust Óður til Írlands. Það ýtti svona við okkur að byrja aftur og nú í vetur fóru hjólin svo að snúast að ráði.“

Í Slitnum strengjum eru fjórtán ungar konur sem allar spila á fiðlu, flestar gamlir nemendur Ragnars úr TOSKA. „Hljómsveitin okkar, þegar stelpurnar voru ungar, hét Þjóðlagasveit TOSKA. Þær neituðu hins vegar að hætta og héldu áfram hópinn og hljómsveitin Slitnir strengir var stofnuð. Allt er þetta svo tenging við gömlu ræturnar, hljómsveit sem hét Brotnir bogar og varð til í kringum 1979,“ segir Ragnar og rifjar upp að þá var hann sjálfur 15 ára.

Ragnar segir að nú eftir sjö ára dvala muni Slitnir strengir slá tóninn á Írskum dögum. „Við munum að þessu sinni eingöngu stíla inn á keltneska og írska tónlist og dúndra í gömlu lögin; ballöður, ræla og jigs sem blandast saman við þjóðlög og söngballöður sem láta engan ósnortinn. Tónleikarnir verða þannig kjörið tækifæri til að fara í kvöldstundarferðalag til Írlands og koma sér í stuð fyrir Írska daga.

Fjórtán fiðlur eru í Slitnum strengjum, en við verðum við með hörku band með okkur að auki. Flosi Einarsson verður á píanó, Sigurþór Þorgilsson á bassa, Eiríkur Guðmundsson á trommur, Eðvarð Lárusson á gítar og panflautuleikari verður Saidhbhe Eimlíe Ní Sheartáin Channáin.

Það verða bara þessir einu tónleikar,“ segir Ragnar og minnir á að miðasalasala er á tix.is

Að þessu sinni verður eingöngu stílað inn á keltneska og írska tónlist og dúndrað í gömlu lögin; ballöður, ræla og jigs sem blandast saman við þjóðlög og söngballöður