
Sigga og Birna alsælar á bekknum.
Fjólubláir bekkir við Brákarhlíð
Í sveitarfélögum víða um land má finna fjólubláa bekki merkta Alzheimersamtökunum. Þeim er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu. Fjólublár er alþjóðlegur litur vitundarvakningar um heilabilun og hefur því orðið tákn um fræðslu, skilning og stuðning við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.