Skallagrímur með stórsigur gegn Uppsveitum

Skallagrímur og Uppsveitir áttust við í 5. deild karla í knattspyrnu á Skallagrímsvelli á laugardaginn. Þar vann Skallagrímur stórsigur á Uppsveitum 4-0. Fyrstu tvö mörk Skallagríms komu í fyrri hálfleik; á 28. og 32. mínútu en hin tvö komu annars vegar snemma í síðari hálfleik og hins vegar á lokamínútu venjulegs leiktíma. Einungis tveimur mínútum var bætt við leikinn.  Alejandro Serralvo Gomez skoraði tvö mörk en Sveinn Svavar Hallgrímsson og Guðjón Andri Gunnarsson sitt markið hvor.

Skallagrímur með stórsigur gegn Uppsveitum - Skessuhorn