Fréttir

true

Saga ljóshærðu hetjunnar rifjuð upp hjá Feyenoord

Á stuðningsmannasíðu knattspyrnuliðsins Feyenoord í Hollandi var nýlega minnst á Pétur Pétursson knappstyrnumann og saga hans með félaginu rifjuð upp. Pétur varð goðsögn með liðinu, en með því lék hann í tvígang; árin 1978–1981 og aftir 1984–1985. Pétur spilaði 107 leiki með liðinu, skoraði í þeim 60 mörk, varð bikarmeistari 1980 og skoraði sjálfur tvö…Lesa meira

true

Ólík mál komu til kasta lögreglu

Ýmis mál komu til kasta Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Þannig var eitt skemmdarverk tilkynnt til lögreglu. Tveir einstaklingar tilkynntu um fjársvik og eitt umferðarslys varð í vikunni. Einn var kærður fyrir vörslu fíkniefna og annar fyrir þjófnað. Þá tók lögregla þátt í aðgerðum vegna bátsbruna á Breiðafirði, sem sagt er frá í…Lesa meira

true

Stýrihópur vegna almyrkva heimsótti Vesturland

Markaðsstofa Vesturlands skipulagði vettvangsferð á Vesturlandi fyrir stýrihóp Stjórnarráðsins vegna almyrkvans 12. ágúst í sumar. Hlutverk stýrihópsins er að afla upplýsinga og hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast atburðinum og tryggja samræmda nálgun og upplýsingagjöf ráðuneyta og stofnana auk sveitarfélaga. Hópurinn var á ferðinni í gær. Viktor Ingi Jakobsson verkefnisstjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá Borgarbyggð…Lesa meira

true

Hamarsvöllur í Borgarnesi færir út kvíarnar – ítarleg umfjöllun

Fjölgun iðkenda, nýtt klúbbhús og stækkun golfvallarins meðal helstu áskorana Það vekur athygli að golf hefur á síðustu árum styrkt stöðu sína mjög og er nú ein stærsta einstaklingsíþrótt landsins. Knattspyrnan heldur þó enn efsta sætinu með nokkrum yfirburðum, en merkilegt nokk þá eru fimleikar þriðja fjölmennasta íþróttagreinin. Þar á eftir koma svo hestaíþróttir og…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á stórum hluta Vesturlands í nótt

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöðina á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði, þ.m.t. Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Hellissandi, Vegamótum og Borgarnesi, frá miðnætti og til klukkan 02:10 í nótt; aðfaranótt fimmtudagsins 11. júní. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000.“Lesa meira

true

Skoðunardagur fornbíla er á föstudaginn

Næstkomandi föstudag frá klukkan 14-18 verður sameiginlegur skoðunardagur Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Raftanna hjá Frumherja við Sólbakka í Borgarnesi. Frumherji mun bjóða upp á grillaðar pylsur og gos af þessu tilefni. Viðbúið er að margir eldri vélfákar, sem alla jafnan eru ekki í umferðinni, mæti á svæðið.Lesa meira

true

Málörvun í daglegu leikskólastarfi í Borgarbyggð

Síðastliðinn fimmtudag var haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi – snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar. Hátíðin var haldin í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Allir leikskólar í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu, en það var unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. „Á árinu hafa leikskólarnir rýnt í málörvunarstarfið…Lesa meira

true

„Til fiskiveiða fóru“

Sýning opnuð í Bátahúsinu á Byggðasafni Akraness og Hvalfjarðarsveitar Sýningin „Til fiskiveiða fóru“ hefur nú verið opnuð í Bátahúsinu á Byggðasafninu í Görðum. Sýningin er öll hin glæsilegasta en undirbúningur hennar hefur staði yfir í nokkurn tíma, en þar er skyggnst inn í útgerðarsögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Það var viðeigandi að sýningin var opnuð almenningi …Lesa meira

true

Stórleikur hjá ÍA í bikarnum

Föstudaginn 12. júní nk. verður stórleikur í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu á Elkem vellinum á Akranesi. Þá mæta Íslandsmeistarar Víkings Skagamönnum í átta liða úrslitum bikarsins. Leikurinn hefst kl. 20:15 en dagskrá mun hefjast á svæðinu kl. 18:00 þar sem spáð er frábæru veðri. Það er mikið undir fyrir bæði lið og ekki loku fyrir…Lesa meira

true

Starfrækja kaffihús í Skemmunni í sumar

Í Skemmunni, elsta húsi Hvanneyrarstaðar, verður í sumar opið kaffihús. Að því standa hjónin Iðunn Hauksdóttir ráðgjafi hjá Landi og Skógi og Kristján Thors kokkur, en þau eru búsett á staðnum. Þess má geta að á sínum tíma þegar Skemman var gerð upp kom að verkinu laghentur Ölkeldingur, Haukur Þórðarson, faðir Iðunnar. „Við munum bjóða…Lesa meira