
Sveitarfélagið Dalabyggð hefur auglýst eftir veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í sveitarfélaginu árin 2026 til 2029. Skilyrði er að veiðimenn hafi gilt veiðikort og æskilegt að viðkomandi séu kunnir staðháttum og hafi reynslu af refa- og minkaveiðum. Núverandi veiðimenn sveitarfélagsins eru hvattir til að sækja um aftur og halda áfram sínu góða starfi.…Lesa meira



