Fréttir

true

Dvalarrýmum Brákarhlíðar breytt í hjúkrunarrými

Heilbrigðisráðuneytið hefur með bréfi til framkvæmdastjóra Brákarhlíðar tilkynnt að heilbrigðisráðherra hafi samþykkt beiðni stjórnar heimilisins um breytingu á öllum dvalarrýmum þess í hjúkrunarrými. Enda er ekki eftirspurn lengur eftir fyrrnefnda fyrirkomulaginu. Þar með verður Brákarhlíð alfarið hjúkrunarheimili í stað þess blandaða dvalar- og hjúkrunarheimilis sem verið hefur um árabil. Biðlisti er eftir hjúkrunarrýmum á þjónustusvæði…Lesa meira

true

Enn ein lægðin – færð og veður næsta sólarhringinn

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir vegna storms og hríðarveðurs víða um land seint í kvöld og í nótt á Breiðafirði og miðhálendinu, á Suðurlandi, Faxaflóa og Ströndum. Hvassviðri eða stormur með vindhraða á bilinu 13-20 m/s með hvössum vindstrengjum verður við fjöll á Suðurlandi og má búast við talsverðri eða mikilli snjókomu, lélegu…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit – listi Íbúahreyfingarinnar

Íbúahreyfing Hvalfjarðarsveitar hefur birt framboðslista sinn. Þar eru alls 14 nöfn, en efst þessi þrjú: Þóra Margrét Júlíusdóttir skipulagsfræðingur Svarfhóli í fyrsta sæti. Baldur Þór Ketilsson kerfisfræðingur Leyni í öðru og Vignir Sigurjónsson lögfræðingur, Lækjarmel 9 í þriðja sæti. Málefnaskrá framboðsins hefur einnig verið birt og er þar kveðið á um nokkra megin þætti í…Lesa meira

true

Covid kort öðluðust nýtt líf í Smiðjunni

Á hverju ári gefur Markaðsstofa Vesturlands út upplýsingakortið Visit West Iceland sem samstarfsaðilar í ferðaþjónustu nýta til að leiðbeina gestum, vekja áhuga og hvetja til lengri dvalar og fjölbreyttrar upplifunar á Vesturlandi. Eftir heimsfaraldurinn Covid-19 sat eftir hjá Markaðsstofunni lager af úreltum kortum frá þeim árum. Í stað þess að láta kortin fara til spillis…Lesa meira

true

Boða kynningarfund vegna sólmyrkvans á Teams

Almannavarnir hafa boðað til kynningarfundar á samskiptaforritinu Teams mánudaginn 13. apríl nk. kl. 11-12. Fundurinn er ætlaður ferðaþjónustuaðilum en rætt verður um fyrirhugaðar ráðstafanir vegna almyrkvans á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Fundurinn er sá fyrsti í röðinni en fleiri slíkir upplýsingafundir eru áætlaðir, eftir því sem nær dregur þessum einstaka viðburði. Á dagskrá…Lesa meira

true

Farsælt samstarf Heilsueflingar 60+ og Eldhamra

Frá haustinu 2023 hafa nemendur á Eldhömrum og iðkendur í Heilsueflingu 60+ í Grundarfirði hist reglulega og kynnst starfi hvors annars. Hóparnir eru með nokkrar góðar samverustundir yfir veturinn. Nemendur á Eldhömrum mæta í íþróttatíma með Heilsueflingunni þar sem farið er í skemmtilega leiki og teygt vel á. Iðkendur heilsueflingar koma svo á Eldhamra og…Lesa meira

true

Skessuhorn næst 8. apríl

Minnt er á að Skessuhorn er í útgáfufríi í dymbilvikunni og kemur því ekki út blað í dag. Næsta blað verður gefið út miðvikudaginn 8. apríl. Hægt er að panta auglýsingar með tölvupósti á netfangið auglysingar@skessuhorn.is eða hringja í síma 433-5500. Efni til ritstjórnar sendist á: skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira

true

Styrkir til vinnustaðaklasa

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað tæpum 50 milljónum kr. í styrki til 26 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og…Lesa meira

true

Skorradalur og Borgarbyggð – skil meðmæla til beggja sveitarfélaga

Vel flestir, ef ekki allir landsmenn, vita að sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026. Af því tilefni eru öll framboð hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi til söfnunar meðmæla og skráningin var opnuð á island.is 3. mars sl. Vegna sameiningar Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september á síðasta ári vill sveitarstjórn Skorradalshrepps koma eftirfarandi á…Lesa meira

true

Guðveig gengur til liðs við Landnámssetrið

Guðveig Lind Eyglóardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands. Guðveig hefur yfirgripsmikla stjórnunareynslu tengslum við rekstur og starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja og úr stjórnsýslunni. Hún hefur síðan árið 2022 verið forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð og hefur setið síðustu 12 ár í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Hún hefur leitt fjölbreytt verkefni og sinnt formennsku í ótal starfshópum, stjórnum, ráðum og…Lesa meira