Boða kynningarfund vegna sólmyrkvans á Teams

Almannavarnir hafa boðað til kynningarfundar á samskiptaforritinu Teams mánudaginn 13. apríl nk. kl. 11-12. Fundurinn er ætlaður ferðaþjónustuaðilum en rætt verður um fyrirhugaðar ráðstafanir vegna almyrkvans á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Fundurinn er sá fyrsti í röðinni en fleiri slíkir upplýsingafundir eru áætlaðir, eftir því sem nær dregur þessum einstaka viðburði.

Á dagskrá fundarins má nefna að verkefnið, nálgun stjórnvalda og sviðsábyrgðarreglan verður kynnt af Runólfi Þórhallssyni yfirlögregluþjón almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu mun kynna upplýsingasíðu vegna almyrkvans og Vegagerðin upplýsingar um lokanir vega og umferðarskipulag. Þá verða stuttar kynningar frá lögregluembættum um undirbúning umferðarskipulags og fulltrúi Náttúruverndarstofnunar fjallar um friðlýst svæði og umgengni.

Sökum fjölda fólks á fundinum verður ekki boðið upp á spurningar á þessum kynningarfundi en þeir sem hafa spurningar tengdar ferðaþjónustu er bent á að snúa sér til viðkomandi markaðsstofu. Hér á Vesturlandi er það Markaðsstofu Vesturlands og bent á netfangið info@west.is