
Covid kort öðluðust nýtt líf í Smiðjunni
Á hverju ári gefur Markaðsstofa Vesturlands út upplýsingakortið Visit West Iceland sem samstarfsaðilar í ferðaþjónustu nýta til að leiðbeina gestum, vekja áhuga og hvetja til lengri dvalar og fjölbreyttrar upplifunar á Vesturlandi. Eftir heimsfaraldurinn Covid-19 sat eftir hjá Markaðsstofunni lager af úreltum kortum frá þeim árum. Í stað þess að láta kortin fara til spillis kviknaði hugmynd hvort hægt væri að gefa þeim nýtt líf. Úr varð samstarf við Smiðjuna í Ólafsvík, sem er virkni- og hæfingastöð fyrir fólk með skerta starfsgetu. Þar var tekið vel á móti efninu og það nýtt á skapandi hátt í vöruþróun. „Í dag hafa úreltu kortin umbreyst í fallegar og skemmtilegar vörur – meðal annars púsl, bókamerki, samstæðuspil og domino; vörur sem unnar voru í samstarfi við veitingahúsið Matarlist í Ólafsvík.