Ungir sem aldnir þurfa að teygja á vöðvunum eftir góðar æfingar. Texti/Ljósm. TFK

Farsælt samstarf Heilsueflingar 60+ og Eldhamra

Frá haustinu 2023 hafa nemendur á Eldhömrum og iðkendur í Heilsueflingu 60+ í Grundarfirði hist reglulega og kynnst starfi hvors annars. Hóparnir eru með nokkrar góðar samverustundir yfir veturinn. Nemendur á Eldhömrum mæta í íþróttatíma með Heilsueflingunni þar sem farið er í skemmtilega leiki og teygt vel á. Iðkendur heilsueflingar koma svo á Eldhamra og eiga notalega stund með krökkunum þar sem nemendur hafa útbúið hressingu eftir að hafa sýnt deildina. Þá er mikið leikið, spjallað og allir eiga notalegar stundir saman.

Farsælt samstarf Heilsueflingar 60+ og Eldhamra - Skessuhorn