Guðveig gengur til liðs við Landnámssetrið

Guðveig Lind Eyglóardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands. Guðveig hefur yfirgripsmikla stjórnunareynslu tengslum við rekstur og starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja og úr stjórnsýslunni. Hún hefur síðan árið 2022 verið forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð og hefur setið síðustu 12 ár í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Hún hefur leitt fjölbreytt verkefni og sinnt formennsku í ótal starfshópum, stjórnum, ráðum og nefndum er lúta að stefnumótun, úrbótum, greiningu og samþættingu fjölbreyttra verkefna.