
Hvalfjarðarsveit auglýsti fyrr í vetur starf skólastjóra Heiðarskóla laust til umsóknar. Ellefu umsóknir bárust og segir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri að fimm umsækjendur hafi verið boðaðir í viðtal. Ráðningarnefnd fer með vinnslu umsókna, viðtöl og leggur fram tillögu um ráðningu skólastjóra. Velferðar- og fræðslunefnd veitir sveitarstjórn umsögn vegna ráðningarinnar en stefnt er að því að…Lesa meira








