Fréttir

true

Lögbýlum fjölgaði um níu á síðasta ári

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út Lögbýlaskrá fyrir árið 2025. Samkvæmt henni eru 6.808 lögbýli á Íslandi en á síðasta ári voru gerðar breytingar, þar sem níu ný lögbýli voru skráð en ekkert lögbýli var afskráð. Samkvæmt jarðalögum teljast þau lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi…Lesa meira

true

Gul viðvörun um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudag frá klukkan 9-13, er gul viðvörun fyrir spásvæðið Faxaflóa. Þá verður suðaustan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni á köflum, einkum á fjallvegum, en einnig t.d. á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Vindhviður kringum 30 m/s við fjöll, sem er varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Samgöngur geta raskast.…Lesa meira

true

Mottuleiðir og fleira frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar

Marsmánuður fyrir afa, pabba, syni, bræður, vini og okkur öll Fram undan er marsmánuður, mánuður sem Krabbameinsfélag Íslands, ásamt aðildarfélögum um land allt, hafa nýtt til að minna karlmennina okkar á að fara í skimun. Það gera félögin með ýmsum hætti, allt eftir því sem geta og vilji leyfir hverju sinni. Það er vel og…Lesa meira

true

Fyrsta loðnan komin á Akranes

Venus NS-150, uppsjávarveiðiskip Brims, kom snemma í morgun með fyrsta loðnufarm vertíðarinnar til vinnslu á Akranesi. Nú er verið að landa 1500 tonnum úr skipinu. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns verður loðnin skorin á Akranesi en ekið með hrognin til frystingar á Vopnafirði.Lesa meira

true

Dauðar æðarkollur í Akraneshöfn

Í gærmorgun urðu árrisulir einstaklingar varir við fimm dauðar æðarkollur í Akraneshöfn. Lögreglu var tilkynnt um fuglana en síðan tekur við lögbundið ferli að Matvælastofnun er látin vita. Ekki liggur fyrir hvort kollurnar hafi drepist vegna fuglaflensku eða af öðrum orsökum. Á meðfylgjandi mynd var eftirlifandi æðarkollur í Akraneshöfn í gærdag.Lesa meira

true

Íbúahreyfingin fékk fimmtíu íbúa á undirbúningsfund

„Ég væri ánægður ef að minnsta kosti þrír listar kepptu um hylli kjósenda í vor í Hvalfjarðarsveit,“ segir Áskell Þórisson, einn þriggja sem stóðu fyrir opnum fundi um sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Hlöðum og mættu þar um fimmtíu íbúar. „Okkur fannst það vera samfélagsleg skylda okkar að sjá til þess…Lesa meira

true

Andlát – Davíð Oddsson ritstjóri og fv. forsætisráðherra

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra er látinn, 78 ára að aldri. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir. Davíð var einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins um áratugaskeið. Hann var kjörinn í borgarstjórn 1974 og sat þar til ársins 1994, og var borgarstjóri 1982-1991. Hann…Lesa meira

true

Snæfellskonur með nauman sigur

Njardvík-B tók á móti Snæfelli í leik í fyrstu deild kvenna í körfu á laugardaginn. Leikar fóru þannig að Snæfell fór með sigur af hólmi, með minnsta mun: 58-57. Segja má að heimakonur í Njarðvík hafi átt fyrsta leikhluta en eftir hann leiddu þær með 15 stigum gegn sjö. Annar leikhluti var hins vegar gestanna…Lesa meira

true

Íþróttamiðstöðin í Búðardal formlega tekin í notkun – myndasyrpa

Það var ósvikin hátíðarstemning í Búðardal í gær þegar ný og glæsileg íþróttamiðstöð var formlega vígð. Dalabyggð bauð til veislu, ávörp voru flutt, sóknarpresturinn blessaði mannvirkin og boðið var upp á risastóra afmælistertu. Talið er að um fimm hundruð gestir á öllum aldri hafi verið viðstaddir. Það var svo Halla Tómasdóttir forseti Íslands sem klippti…Lesa meira

true

Gísla Jóns siglt til heimahafnar á Akranesi

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður milli Björgunarfélags Akraness og Björgunarbátasjóðs Vestfjarða um kaup á björgunarskipinu Gísla Jóns. Samningur um kaupin náðist í liðinni viku og hélt vaskur hópur björgunarfólks vestur á Ísafjörð, gekk frá kaupsamningi og sigldi skipinu heim. „Við ákváðum að sigla áleiðis heim á laugardegi, en við gömlu sveitamennirnir bindum tryggð við…Lesa meira