
Gísla Jóns siglt til heimahafnar á Akranesi
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður milli Björgunarfélags Akraness og Björgunarbátasjóðs Vestfjarða um kaup á björgunarskipinu Gísla Jóns. Samningur um kaupin náðist í liðinni viku og hélt vaskur hópur björgunarfólks vestur á Ísafjörð, gekk frá kaupsamningi og sigldi skipinu heim. „Við ákváðum að sigla áleiðis heim á laugardegi, en við gömlu sveitamennirnir bindum tryggð við máltækið „Laugardagur til lukku,“ og heim vorum við svo komin klukkan eitt í nótt; á „Sunnudegi til sælu,“,“ segir Ásgeir Örn Kristinsson björgunarsveitarmaður í samtali við Skessuhorn. „Heimferðin var því í einni beit og gekk vel. Veður var ágætt, ölduhæð var hálfur þriðji metri út af Vestfjörðum þannig að við fengum að kynnast því að þetta er mjög gott sjóskip þótt siglt sé greitt. Vorum á þetta um 20-25 sjómílna hraða, en ganghraði Gísla Jóns er allt upp í 27 mílur. Það er um tvöfalt meiri hraði en við náum að sigla Jóni Gunnlaugssyni,“ segir Ásgeir. Nú verður Jón Gunnlaugsson seldur til að fjármagna hluta kaupverð nýs og öflugra björgunarskips.

Sagan
Smíðaár Gísla Jóns var 1990. Skipið kom til Ísafjarðar árið 2019 frá Noregi þar sem það hafði verið gert út af norsku björgunarskipasamtökunum undir nafninu R/S Skuld, í höfuðið á norsku tryggingafélagi, sem hafði stutt dyggilega við samtökin. Fram kemur um sögu R/S Skuldar ytra að undir merkjum félagsins hafa 5390 skip verið aðstoðuð á einn eða annan hátt, 4481 einstaklingur notið aðstoðar áhafnar og af þeim voru 64 lífbjarganir.
Á Ísafirði hefur björgunarskipið og áhöfn þess sinnt fjölda útkalla í góðu samstarfi við aðrar björgunareiningar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum. Aðstæður á svæðinu eru erfiðar og mörg af erfiðustu björgunarverkefnum sem þekkt eru á Íslandi hafa orðið á þessu svæði. Á Vestfjörðum er mjög mikil sjósókn, veður geta orðið válynd og því mikilvægt að allt björgunarviðbragð sé eins og best verður á kosið. Á sumrin er mikil ásókn ferðamanna inn á svæðið og hluti þess, sérlega Hornstrandir, er ómögulegt að koma björgunarliði að nema af sjó eða úr lofti. Björgunarskipakostur á Vestfjörðum er því mjög mikilvægur og þar hefur Gísli Jóns farið fremstur í flokki annarra öflugra skipa. Þar sem nýtt skip er nú komið til Ísafjarðar, Guðmundur í Tungu, en um leið var Gísli Jóns laus til nýrra verkefna.
„Við þökkum Ísfirðingum fyrir góðar móttökur og hlökkum til að fá þetta öfluga skip á Akranes,“ segir í tilkynningu frá Björgunarfélagi Akraness.

Kostað með stuðningi nærsamfélagsins
„Í undirbúningi að þessum kaupum hefur Björgunarfélag Akraness leitað leiða til þess að fjármagna kaupin og einnig aukinn rekstrarkostnað. Þar sem félagið er ekki inn í björgunarskipa hópi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og nýtur þar með ekki þess ríkisstuðnings sem þau skip njóta, er það fyrst og fremst nærsamfélag Björgunarfélagsins sem styður vel við þetta verkefni. Félag sjómanna á Akranesi ásamt sveitarfélögunum Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit hafa nú þegar samþykkt að styðja við verkefnið. Einnig hafa fyrirtæki og einstaklingar lagt verkefninu lið. Meira þarf samt til og áfram verður haldið með að afla fjár til kaupanna og rekstursins. Einn mikilvægasti liðurinn í þessari söfnun er framlag íbúa til reksturs Björgunarfélags Akraness í formi skilaskyldra umbúða. Sú fjáröflun er okkur mjög mikilvæg og auðvelt fyrir íbúa að rétta okkur hjálparhönd þar,“ segir í hugleiðingum félaga í Björgunarfélagi Akraness.
Þeim sem vilja styðja við skipakaup Björgunarfélags Akraness með beinum hætti er bent á bankareikning: 0330-26-1800 og kt: 470100-3030.
