
Svipmynd af fundinum á Hlöðum. Ljósm. jgh
Íbúahreyfingin fékk fimmtíu íbúa á undirbúningsfund
„Ég væri ánægður ef að minnsta kosti þrír listar kepptu um hylli kjósenda í vor í Hvalfjarðarsveit,“ segir Áskell Þórisson, einn þriggja sem stóðu fyrir opnum fundi um sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Hlöðum og mættu þar um fimmtíu íbúar. „Okkur fannst það vera samfélagsleg skylda okkar að sjá til þess að hægt verði að kjósa um málefni og áherslur í sveitinni,“ sagði Jóhanna G. Harðardóttir en hún ásamt Áskeli og Marteini Njálssyni stóðu að boðun hans.