Fréttir

true

Minni velta í fata- og byggingaverslunum

Velta í fata- og byggingavöruverslunum dróst saman um rúm 3% á árinu 2025 samanborið við árið 2024, samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Á sama tíma hefur netverslun erlendis frá aukist verulega í þessum vöruflokkum, sem bendir til áframhaldandi tilfærslu neyslu úr innlendri verslun yfir í erlendar netverslanir. Á móti þessari þróun jókst velta í matvöruverslunum…Lesa meira

true

Háskóladagurinn framundan

Háskóladagurinn verður haldinn laugardaginn 28. febrúar í Reykjavík og fer í kjölfarið til Vestmannaeyja 3. mars, til Ísafjarðar 5. mars og á Akureyri 11. mars. Á Háskóladeginum kynna allir háskólar landsins fjölbreytt námsframboð sitt og er dagurinn samstarfsverkefni allra háskóla landsins og ómissandi fyrir þau sem hyggja á háskólanám.Lesa meira

true

Sigldu til móts við Rifsnesið

Á fjórða tímanum í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út á hæsta forgangi. Gangtruflanir voru þá í línubátnum Rifsnesi sem var á útleið eftir löndun. Hætta var talin á ferðum þar sem skipið var mjög nærri landi þegar gangtruflanir gerðu vart við sig. Ekki reyndist þó þörf á að taka skipið í tog…Lesa meira

true

Tannlæknastóll kemur í Brákarhlíð

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi á 55 ára starfsafmæli á þessu ári. Á þessum tímamótum eru ýmiss konar framkvæmdir í gangi sem skipta bæði heimilisfólk og starfsfólk miklu máli. Meðal þess sem fyrirhugað er er að kaupa tannlæknastól til að geta boðið tannlæknisþjónustu á staðnum. Blaðamaður Skessuhorns kynnti sér málið hjá Ingu Dóru Halldórsdóttur…Lesa meira

true

Fosshótel Reykholt og Bjarteyjarsandur hljóta verðlaun

Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn í gær. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi.   Verðlaun þessi byggja á umsögnum frá um þúsund ferðamönnum sem koma árlega til Íslands á vegum CIE Tours, að mestu frá Bandaríkjunum.…Lesa meira

true

Kynntu Ísland á European Buffet

Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands taka í þessari viku taka þátt í virtri franskri landbúnaðarkeppni, CJAJ 2026. Sýningin er ein sú stærsta í Evrópu. Þetta er í annað skipti sem nemendur búfræðideildar skólans taka þátt. CJAJ – keppnin er hluti af Concours Général Agricole, alþjóðlega viðurkenndum vettvangi þar sem ungir landbúnaðarnemar og búfræðingar framtíðarinnar eru metnir í…Lesa meira

true

Vegagerðin bendir á veðuraðstæður

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við að færð geti versnað síðar í dag. „Það snjóar víða á suðvestanverðu landinu eftir hádegi. Þar sem snjóar mest verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu. Það er enn nokkur óvissa hvar snjóar mest, en spáð er hríðarveðri á Reykjanesbraut og á hringveginum norður af Hvalfirði á milli…Lesa meira

true

Fjárfestingar í sauðfjárrækt styrktar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. Fram kemur í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins að skila skal inn umsóknum vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 rafrænt á Afurð, eigi síðar en 15. mars. Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum og…Lesa meira

true

Áhyggjur af ófrágengnum samningi við UMSB

Fræðslunefnd Borgarbyggðar bókaði um samning við Ungmennasamband Borgarfjarðar á fundi sínum 19. febrúar sl. Þar kom fram að unnið hefði verið að því frá síðasta hausti að ná samningi við UMSB á grunni íþróttastefnu Borgarbyggðar sem samþykkt var í sveitarstjórn. Fræðslunefnd hefur áhyggjur af því að ekki hafi tekist að klára þann samning sem nefndinni…Lesa meira

true

Suðvestan átt með snjókomu eða éljum fram að helgi

Fram að næstu helgi gera veðurfræðingar ráð fyrir suðvestan átt, víða nokkuð hvassri, samhliða snjókomu eða éljagangi. Lægðardrög fara næstu þrjá daga austur yfir landið. Eftir hádegi í dag verður suðvestan og sunnan 8-15 m/s og snjókoma eða él, en úrkomulaust að kalla á austanverðu landinu. Frost 1 til 7 stig. Skúrir eða él sunnanlands…Lesa meira