Hér sést nýrri hluti Brákarhlíðar sem tekinn var í notkun árið 2012, hannaður af Einari Ingimarssyni arkitekt.

Tannlæknastóll kemur í Brákarhlíð

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi á 55 ára starfsafmæli á þessu ári. Á þessum tímamótum eru ýmiss konar framkvæmdir í gangi sem skipta bæði heimilisfólk og starfsfólk miklu máli. Meðal þess sem fyrirhugað er er að kaupa tannlæknastól til að geta boðið tannlæknisþjónustu á staðnum. Blaðamaður Skessuhorns kynnti sér málið hjá Ingu Dóru Halldórsdóttur framkvæmdastjóra heimilisins.