Rifsnesið að koma að bryggju. Ljósm. af

Sigldu til móts við Rifsnesið

Á fjórða tímanum í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út á hæsta forgangi. Gangtruflanir voru þá í línubátnum Rifsnesi sem var á útleið eftir löndun. Hætta var talin á ferðum þar sem skipið var mjög nærri landi þegar gangtruflanir gerðu vart við sig. Ekki reyndist þó þörf á að taka skipið í tog og gat það siglt fyrir eigin vélarafli að bryggju að nýju. Landað var 95 tonnur úr Rifsnesinu fyrr í dag.