
Fosshótel Reykholt og Bjarteyjarsandur hljóta verðlaun
Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn í gær. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi. Verðlaun þessi byggja á umsögnum frá um þúsund ferðamönnum sem koma árlega til Íslands á vegum CIE Tours, að mestu frá Bandaríkjunum. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum, þau sem skora hæst í ánægju viðskiptavina hljóta gullverðlaun en einnig er veitt sérstök viðurkenning fyrir fyrirtæki sem hljóta yfir 90% ánægju meðal viðskiptavina. „Með þessum verðlaunum viljum við heiðra þau fyrirtæki sem veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og stuðla að ánægjulegri dvöl þeirra á Íslandi,“ segir Stephen Cotter, framkvæmdastjóri CIE Tours.