Fréttir

true

Opinn fræðslufundur um niðurstöðu EFTA dómstólsins

Landbúnaðarháskóli Íslands og Bændasamtök Íslands bjóða til opins fundar á Hvanneyri á morgun, föstudaginn 24. nóvember kl. 14:00 – 16:30 í Ásgarði. Til umræðu verður niðurstaða EFTA dómstólsins sem nýlega féll og snýr að innflutningi á fersku kjöti, eggjum og afurðum úr ógerilsneyddri mjólk frá Evrópu til Íslands og hugsanlega áhrif dómsins. Þann 14. nóvember…Lesa meira

true

Góður síðari hálfleikur skóp sigur Skallagríms

Skallagrímur sigraði Njarðvík 86-79, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi og eftir jafnan fyrri hálfleik náði Skallagrímur undirtökunum í þriðja leikhluta og kláraði leikinn. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og jafnt var á með liðunum í upphafi. Varnarleikur liðanna var ekki upp á marga fiska…Lesa meira

true

Stefnumótunarfundur var haldinn í Háskólanum á Bifröst

Í liðnum mánuði hélt stjórn Háskólans á Bifröst stefnumótunarfund þangað sem boðið var fulltrúaráði skólans, starfsfólki, nemendum og fulltrúum aðstandenda skólans. Góð mæting var á fundinn en hann sóttu yfir 50. Voru mörg áhugaverð sjónarmið viðruð og velt upp spurningum er lúta m.a. að stefnupýramída skólans, Háskólanum á Bifröst eftir 10 ár, tengingu skólans við…Lesa meira

true

„Sagan af Leifi Eiríkssyni og Eiríki rauða er stöngin inn“

Liður í dagskrá uppskeruhátíðar ferðaþjónustunnar á Vesturlandi síðastliðinn fimmtudag var kynning Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur á fyrirhugaðri uppbyggingu Vínlandsseturs í Leifsbúð í Búðardal. Þau eiga bæði sæti í Eiríksstaðanefnd og hafa unnið að hugmyndum um og undirbúningi stofnunar Vínlandsseturs í Leifsbúð. Þar verður rakin sagan af landnámi Grænlands og tilraunum norrænna manna til…Lesa meira

true

Fáliðaðar Snæfellskonur gáfu ekki tommu eftir

Snæfellskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Keflavík, 100-91, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Snæfell mætti með aðeins sjö leikmenn til leiksins, en meiðsli hafa herjað á liðið undanfarið. María Björnsdóttir hefur til að mynda ekki geta leikið með liðinu síðan hún fékk höfuðhögg gegn Stjörnunni…Lesa meira

true

Skráningu lýkur í kvöld á minningarmót í bridds

Í kvöld rennur út frestur til skráningar á minningarmót í bridds sem haldið verður í Logalandi í Borgarfirði nk. laugardag. Mótið er til minningar um Þorstein Pétursson kennara og briddsspilara sem lést fyrr á þessu ári. Í gærkvöld höfðu 28 pör skráð sig til leiks og enn er hægt að bæta við. Spiluð verða 48…Lesa meira

true

Stígamót með reglulega starfsemi á Vesturlandi

Stígamót hófu reglubundna þjónustu á Vesturlandi í byrjun þessa árs með að bjóða upp á viðtöl fyrir brotaþola kynferðisofbeldis. Viðtölin voru hálfsmánaðarlega í Borgarnesi og á Akranesi. Erla Björg Kristjánsdóttir félagsráðgjafi hjá Stígamótum hefur séð um þjónustuna á Vesturlandi og segir hún það mikilvægt fyrir brotaþola að geta sótt stuðning í sínu nærumhverfi. „Okkar reynsla…Lesa meira

true

Slæm veðurspá víða um land og búist við erfiðri færð

Á Vesturlandi er nú hálka á vegum, hálkublettir eða snjóþekja og eitthvað um éljagang. Athygli er vakin á því að Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og verður næstu vikurnar. Vegna þess hefur Vegagerðin ákveðið að vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða verði aukin til klukkan 20:00. Almennt er spáð mjög slæmu veðri í dag og morgun allt…Lesa meira

true

Tveir leikir framundan hjá karlalandsliðinu

Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, tilkynnti á mánudag tólf manna hóp sem heldur til Tékklands og mætir heimamönnum á morgun, föstudag. Grundfirðingurinn Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, er að venju meðal leikmanna hópsins en Borgnesingurinn Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson er sem fyrr aðstoðarþjálfari liðsins. Leikur…Lesa meira

true

Ætla að verða snjallir undir stýri

Fyrirtækin Hópferðabílar Svans Kristófers og Íslenska Gámafélagið í Snæfellsbæ skrifuðu á dögunum undir samning við Landsbjörgu vegna verkefnisins „Vertu snjall undir stýri.“ Einnig undirrituðu bílstjórar þessara sömu fyrirtækja, ásamt bílstjórum Íslenska Gámafélagsins í Stykkishólmi, undir þátttöku í verkefninu. Verkefnið Vertu snjall undir stýri fór af stað í haust og hafa nú þegar 16 fyrirtæki á…Lesa meira