Fréttir

true

„Kjötborðið eitt það dýrmætasta sem verslunin hefur“

Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður hefur staðið vaktina í kjötborðinu í Verzlun Einars Ólafssonar á Akranesi undanfarin 19 ár. „Ég byrjaði hérna 1. mars 1998 og er því búinn að vera hér í 19 ár,“ segir Hafsteinn og brosir. Frá því hann stóð fyrstu vaktina í kjötborðinu í Einarsbúð hefur ýmislegt breyst í verslun í landshlutanum og…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2017

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru veittar á Sauðamessu sem haldin var í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri veitti viðurkenningarnar í Skallagrímsgarði. Traðir í Hraunhreppi hlutu viðurkenningu sem snyrtilegasta bændabýlið 2017. Í rökstuðningi með dómnum segir að þar sé einstaklega snyrtilegt heim að líta, mikil áhersla lögð á að halda öllum mannvirkjum vel við og umgengni…Lesa meira

true

Ráðstefna um málefni ferðaþjónustu

Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir árlegri ráðstefnu í samstarfi við Deloitte um málefni ferðaþjónustunnar fimmtudaginn 12. október. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Ferðamaðurinn eða fjárfestingin – Hvort kemur á undan?“ og fer hún fram á Grand hótel í Reykjavík milli kl. 13 og 16. Dagskráin samanstendur af ávörpum um ferðaþjónustu á Íslandi þar sem margir ferðaþjónustuaðilar víðs vegar…Lesa meira

true

Lögregla hefur stöðvað meintar ólögmætar innheimtuaðgerðir við Hraunfossa

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú stöðvað innheimtu bílastæðagjalda við Hraunfossa í Borgarfirði. „Það er ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að verða við beiðni Vegagerðarinnar,“ segir í tilkynningu frá embættinu. „Þá telur lögreglustjóri að aðstæður séu til þess fallnar að skapa verulega hættu við þjóðveginn svo ekki verði við unað,“ en þar er vísað til þess að…Lesa meira

true

Ísland getur tryggt Rússlandsfarseðil í kvöld

Landslið karla í knattspyrnu spilar í kvöld afar þýðingarmikinn leik við Kósóvó á Laugardalsvelli og hefst hann klukkan 18:45. Þetta er síðasti leikur íslenska landsliðsins í I riðli, en fyrir hann er liðið í efsta sæti. Með sigri í kvöld er farseðillinn á HM næsta sumar tryggður. Í öðru og þriðja sæti í riðlinum eru…Lesa meira

true

Naumt tap ÍA gegn Hamri

ÍA tók á móti Hamri í annari umferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi en að lokum fór svo að gestirnir sigruðu naumlega, 72-76. Gestirnir úr Hveragerði byrjuðu betur en eftir það höfðu Skagamenn heldur undirtökin í fyrsta leikhluta. Þeir leiddu með örfáum stigum allt þar til undir lok…Lesa meira

true

Blóði safnað á Hvanneyri og í Borgarnesi á morgun

Bíll Blóðbankans verður á ferðinni á morgun í Borgarfirði. „Við verðum með blóðsöfnun á Hvanneyri í fyrramálið frá kl. 10:00 – 12:30 og í Borgarnesi frá kl. 14:00 – 17:00,“ segir í tilkynningu frá Blóðbankanum. Jafnframt er tekið fram að lagerstaðan í bankanum mætti vera betri. „Við vonum að fólk bregðist vel við og komi…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagríms á Fjölni

Skallagrímur vann öruggan sigur á Fjölnim, 86-63, þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gær. Heimamenn byrjuðu af krafti og höfðu undirtökin snemma leiks. Gestirnir hittu ekki úr skotum sínum og héldu skipulaginu ekki nógu vel. Fyrir vikið komst Skallagrímur í 12-3 um miðjan upphafsfjórðunginn. Gestirnir…Lesa meira

true

Miskunnsami samverjinn við Hraunfossa

Erlendur starfsmaður á vegum landeigenda Hraunsáss II, við Hraunfossa í Borgarfirði, hefur nú staðið vakt alla daga frá því á föstudaginn við að innheimta gjald fyrir bílastæði. Almennt er þessi gjaldtaka talin stangast á við lög og er búist við aðgerðum þar til bærra aðila í þessari viku þar sem gjaldtakan verður stöðvuð. En andstæðingum…Lesa meira

true

Kristen með 53 stig þegar Snæfell sigraði Skallagrím

  Snæfell bar siguorð af Skallagrími, 73-84, í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikurinn fór fram í Borgarnesi í gær. Leikurinn fór fremur hægt af stað. Snæfell setti fyrstu stigin en Skallagrímskonur áttu erfitt með að finna taktinn og hefðu ekki geta keypt sér körfu fyrstu mínúturnar. Snæfell komst í 0-10 áður en Skallagrímsliðið…Lesa meira