Fréttir

true

Monika á Merkigili endurútgefin

Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið bókina Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G Hagalín. Bók þessi kom út árið 1954 og var söguhetjan Moníka Helgadóttir, þá 53 ára að aldri. Hún var ekkja á sínu afskekkta býli með sjö dætrum og einkasyni. „Í meðförum Hagalíns verður Moníka á Merkigili ekki aðeins barnmörg húsfreyja í…Lesa meira

true

Telja of geyst ekið um götur Ólafsvíkur

Miklar verklegar framkvæmdir eru nú í gangi víða í Snæfellsbæ með tilheyrandi aukinni umferð stórra ökutækja. Smári Hauksson íbúi við Ennisbraut í Ólafsvík býr beint á móti sundlaug bæjarins og skóla. Hann vekur athygli á auknum akstri stórra vörubíla með farm sem nú fari gegnum bæinn á of miklum hraða að hans mati. „Hraði þessara…Lesa meira

true

Silungurinn óvenjulega vel haldinn á Arnarvatnsheiði

„Við vorum að koma ofan af Arnarvatnsheiði og þetta var meiriháttar ferð. Fengum flotta veiði,“ sagði Hörður Heiðar Guðbjörnsson, en hann ásamt nokkrum félögum sínum fór nýlega til veiða á Arnarvatnsheiði. „Við fengum 20 flotta fiska í Arnarvatni stóra. Margir þeirra voru þetta þrjú til sex pund. Við beittum makríl því fiskurinn virtist ekki líta…Lesa meira

true

Myndasögur og glanstímarit vinsælast í útlánum bókasafna

Nú er hægt að nálgast upplýsingar um hvaða efni er vinsælast í íslenskum bókasöfnum á vef Landskerfis bókasafna. Á vefsíðunni „Vinsælustu titlarnir“ er m.a. hægt að draga út tölur um vinsælustu bækurnar, vinsælustu tímaritin, hvaða kennslubók er eftirsóttust í framhaldsskólum landsins og hvað háskólaborgararnir taka að láni. Einnig er hægt að skoða hvað unga fólkið…Lesa meira

true

Máni Hilmarsson valinn í landsliðið

Á hverju ári sendir Landssamband hestamannafélaga landslið til þátttöku á stórmóti, annarsvegar Norðurlandamót og hinsvegar Heimsmeistaramót íslenska hestsins. Farið er eftir sérstökum lykli við val á keppendum. Heimsmeistaramót íslenska hestsins í hestaíþróttum verður að þessu sinni haldið í Oirschot í Hollandi vikuna 7. – 13. ágúst, á sama stað og mótið var haldið fyrir tíu…Lesa meira

true

Ferjan Akranes í samstarf við Strætó – fyrstu helgarferðirnar framundan

Ferjan Akranes hefur nú siglt á milli Akraness og Reykjavíkur í rétt rúman mánuð. Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir ferjusiglingarnar hafa gengið ágætlega það sem af er. „Við erum ánægð með hvernig ferjusiglingarnar hafa gengið. Við sjáum ákveðið mynstur hvenær fólk nýtir sér ferjuna og hvenær ekki. Í sól og blíðu er ferjan vel sótt…Lesa meira

true

Búið að tryggja 57 starfsmönnum önnur störf en 14 eru enn án úrræða

Starfsfólki HB Granda á Akranesi, sem sagt var upp störfum í tengslum við breytingar á bolfiskvinnslu félagsins, var gefinn kostur á að sækja um áframhaldandi vinnu á öðrum starfsstöðvum á Akranesi og í Reykjavík. Frestur til þess rann út 30. júní síðastliðinn. Í frétt frá fyrirtækinu segir að nú hafi 57 starfsmönnum verið boðið nýtt…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að aldarafmæli fullveldis Íslands

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Hvanneyringurinn Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir var fyrr á þessu ári skipuð framkvæmdastjóri vegna undirbúnings hátíðarhaldanna. Þá hefur nefnd sem Alþingi skipaði til að annast undirbúning og framkvæmd afmælishátíðarinnar hafið störf. „Kallað verður eftir frumkvæði og virkri þátttöku landsmanna með tillögum…Lesa meira

true

Alþjóðlegur sumarskóli í gangi á Bifröst

Alþjóðlegur sumarskóli hófst 8. júlí síðastliðinn við Háskólann á Bifröst. Stendur hann yfir í þrjár viku. Þetta er í annað skipti sem skóli þessi er haldinn en nú fjölgaði nemendum um 30% milli ára þegar 26 þátttakendur mættu frá 15 löndum. Í fyrsta skipti eru þátttakendur frá Brasilíu, Indlandi, Kólumbíu og Bandaríkjunum. Titill sumarskólans er:…Lesa meira

true

Nanna tekur við Amtsbókasafninu í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fundi sínum 6. júlí sl. að ráða Nönnu Guðmundsdóttur í starf forstöðumanns Amtsbókasafnsins. Nanna er þrítug og hefur lokið BA gráðu í Þjóðfræði og MLIS gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Nanna mun hefja störf hjá Stykkishólmsbæ í haust, segir á vef bæjarins.Lesa meira