2. október 2021
Skessuhorn - Fréttaveita Vesturlands

Fréttaveita Vesturlands

StyrkjaGerast áskrifandi
StyrkjaGerast áskrifandi
  • Fréttir
  • Veröld
  • Aðsendar greinar
  • Viðburðir
  • Nýjasta blaðið
Fréttir14.07.2017 13:14

Búið að tryggja 57 starfsmönnum önnur störf en 14 eru enn án úrræða

08.02.2023 11:01

Netin tekin upp og haldið til hafnar

Lesa meira

08.02.2023 10:01

Einn öflugasti leitardróni landsins kominn á Akranes

Lesa meira

08.02.2023 09:01

Afmælisblað í stóru upplagi í næstu viku

Lesa meira

08.02.2023 08:02

Lífið er núna dagurinn á morgun, 9. febrúar

Lesa meira

08.02.2023 06:01

Segir ömurlegt að þurfa að ströggla við að leita réttar síns

Lesa meira

07.02.2023 15:38

Sigrún fórnar hárinu síðdegis á morgun safnist milljón

Lesa meira

Hleð...
Skessuhorn - Fréttaveita Vesturlands
Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 Garðabraut 2a 300 Akranes Sími 433 5500 Ritstjórn: skessuhorn@skessuhorn.is
  • Senda inn efni
  • Nýburar
  • Auglýsingar
  • Starfsfólk
  • Fyrirtækið
  • Nýjasta blaðið
Facebook
Instagram
Twitter
LinkedIn

© 2017–2023 Allur réttur áskilinn Skessuhorn.

Starfsfólki HB Granda á Akranesi, sem sagt var upp störfum í tengslum við breytingar á bolfiskvinnslu félagsins, var gefinn kostur á að sækja um áframhaldandi vinnu á öðrum starfsstöðvum á Akranesi og í Reykjavík. Frestur til þess rann út 30. júní síðastliðinn. Í frétt frá fyrirtækinu segir að nú hafi 57 starfsmönnum verið boðið nýtt starf á öðrum starfsstöðvum HB Granda eða hjá dótturfélögum. „Að svo stöddu er ekki hægt að verða við óskum 14 starfsmanna af þeim 92 sem sagt var upp,“ segir í tilkynningu. „Allir sem tóku fram að Norðurgarður í Reykjavík kæmi til greina sem vinnustaður fá boð um vinnu þar, alls 29 starfsmenn. 28 starfsmenn fá boð um störf á Akranesi, hjá dótturfélögum HB Granda, í Norðanfiski og hjá Vigni G. Jónssyni en einnig við sameiginlega þjónustu, þ.e. umsjón tækja, lóða og fasteigna félagsins. 21 starfsmaður hyggst fara eða hefur þegar farið til annarra vinnuveitanda, eða í nám. Félagið hefur enn ekki fundið lausnir fyrir 14 starfsmenn sem hafa vinnu til 1. september næstkomandi en mun áfram aðstoða þá eftir megni við atvinnuleit innan félagsins sem utan,“ segir í frétt HB Granda.