
Talið er að á milli tvö og þrjú tonn af úrgangsolíu hafi lekið út í jarðveg á Breið á Akranesi í gær þegar Olíudreifing var að dæla úrgangsolíu. Loki eða ventill á lögninni gaf sig með fyrrgreindum afleiðingum. Jarðvinnuverktaki var fenginn til að hreinsa upp mengaðan jarðveg. Leiðslan sem um ræðir er gömul og niðurgrafin.…Lesa meira







