Fréttir

true

Hljóp fjallamaraþon á Mont Blanc

Snemma morguns sunnudaginn 25. júní hófst maraþonhlaupið Marathon Du Mont Blanc. Um er að ræða 42,2 km fjallahlaup með 2.730 metra hækkun þar sem hlaupið er um fjallgarð Mont Blanc en það er hæsta fjall Vestur-Evrópu. Tvö þúsund manns hófu keppni og af þeim voru sex Íslendingar. Einn þeirra var Sigurjón Ernir Sturluson frá Hnúki…Lesa meira

true

Kristen McCarthy snýr aftur í Hólminn

Körfuknattleikskonan Kristen McCarthy, sem varð Íslandsmeistari með Snæfelli veturinn 2014-2015, mun snúa aftur í Stykkishólm og leika með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna næsta vetur. „Það er með miklu stolti sem körfuknattleiksdeild Snæfells tilkynnir samning Kristen, sem er til eins árs,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu félagsins. „Kristen er okkur Snæfellsfjölskyldunni vel kunnug en…Lesa meira

true

Fjölmennasta frjálsíþróttamót SamVest

Sumarmót SamVest í frjálsum íþrótum var haldið í Borgarnesi síðastliðinn sunnudag. Metþátttaka var á mótinu, en alls voru skráðir til leiks 89 keppendur frá aðildarfélögum SamVest og víðar. Gerir það sumarmótið að fjölmennasta viðburði á fimm ára starfstíma SamVest samstarfsins. Á meðfylgjandi mynd eru þátttakendur að taka við verðlaunum sínum. Nánar má fræðast um mótið…Lesa meira

true

Hnausþykk Borgfirðingabók prýdd frásögnum 30 höfunda

Árbók Sögufélags Borgarfjarðar fyrir árið 2017, 18. árgangur Borgfirðingabókar, er komin út og hafa áskrifendur fengið hana í hendur. Bókin er 288 blaðsíður og trúlega finna margir eitthvað við hæfi þar sem efni er eftir 29 höfunda og víða leitað fanga í efnisöflun. Mynd á bókarkápu er eftir Önnu Baldvinsdóttur frá Lambastöðum en hún myndaði…Lesa meira

true

Fjölmennasta pollamótið

Um síðustu helgi fór hið árlega N1-mót fram á Akureyri. Það er fyrir drengi í fimmta flokki í knattspyrnu. Mótið í ár var það þrítugasta í röð og jafnframt það stærsta fram til þessa. Mótið gekk vel og mikil stemning var á því eins og sést vel á myndinni. Þessir hressu strákar kepptu fyrir hönd…Lesa meira

true

Eldra fólk hvatt til að seglja bústaðinn áður en það fer á eftirlaun

„Ef þú átt sumarbústað sem þú hefur í hyggju að selja þá skaltu gera það áður en þú hefur töku lífeyrirs. Söluhagnaður af sumarbústaðnum skerðir lífeyrisgreiðslur,“ segir í frétt á vefnum Lifdununa.is. Vefnum Lifðu núna var komið á fót árið 2014. Markmið hans er að gera líf og störf þeirra landsmanna sem eru komnir um…Lesa meira

true

Keyptu Laxárbakka og eru byrjuð starfsemi

Hjónin Brynjar Sigurðarson og Hekla Gunnarsdóttir festu nýverið kaup á ferðaþjónustunni að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. „Samningarnir voru undirritaðir 20. júní og þá tókum við formlega við rekstri staðarins,“ sagði Brynjar þegar Skessuhorn hitti hann að máli á Laxárbakka í liðinni viku. „Ég hef verið bankastarfsmaður meira og minna síðan árið 2000. Mig langaði að breyta…Lesa meira

true

Kauptilboð komin í tvær fasteignir á Bifröst

Tveir einstaklingar hafa fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags gert aðskilin og bindandi kauptilboð í tvær stærstu fasteignirnar á Bifröst; þrjár hótelhæðir í húsinu Hamragörðum og fasteignina Sjónarhól sem stendur fremst í háskólaþorpinu. Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Hann segir að nú hafi þessir bjóðendur mánaðarfrest til að ljúka fjármögnun þannig…Lesa meira

true

Réttardagar í Borgarbyggð

Réttardagar í Borgarbyggð hafa nú verið ákveðnir og birtir á heimasíðu sveitarfélagsins. Sem kunnugt er var á vormánuðum ákveðið að flýta réttum víða í sveitarfélaginu um eina viku, eins og reyndar víðar á landinu. Þar með er rofin áratuga og sums staðar aldagömul hefð um réttardaga í sveitarfélaginu. Er þetta gert til að koma til…Lesa meira

true

Fræðsluskilti afhjúpuð á Hvanneyri

Síðastliðinn föstudag voru afhjúpuð átta fræðsluskilti um húsin á Hvanneyrartorfunni. Eru þau ætluð til fróðleiks og yndisauka fólks á göngu um gömlu bæjartorfuna. Texti skiltanna er á tveimur tungumálum; íslensku og ensku. Verkið unnu Bjarni Guðmundsson og Sólrún Halla Bjarnadóttir fyrir Ungmennafélagið Íslending og Landbúnaðarsafn Íslands. Nutu þau aðstoðar Jóhannesar Ellertssonar, Þórunnar Eddu Bjarnadóttur, Ísgeirs…Lesa meira