Fréttir

true

Olía lak út í jarðveg á Breiðinni

Talið er að á milli tvö og þrjú tonn af úrgangsolíu hafi lekið út í jarðveg á Breið á Akranesi í gær þegar Olíudreifing var að dæla úrgangsolíu. Loki eða ventill á lögninni gaf sig með fyrrgreindum afleiðingum. Jarðvinnuverktaki var fenginn til að hreinsa upp mengaðan jarðveg. Leiðslan sem um ræðir er gömul og niðurgrafin.…Lesa meira

true

Samdráttur í veltu íslenskra verslana og lækkað verð

Velta dagvöruverslana hér á landi dróst saman um 3,6% í júní frá sama mánuði í fyrra. „Costco er ekki með í mælingunni heldur aðeins þær verslanir sem voru á markaði fyrir komu verslunarrisans. Costco kaus að veita ekki upplýsingar um veltu sína þegar eftir því var leitað,“ segir í frétt frá Rannsóknasetri verslunarinnar sem framkvæmdi…Lesa meira

true

Narfeyrarstofa hlaut titilinn Kokteilbar Stykkishólms 2017

Kokteilakeppnin Stykkishólmur Cocktail Weekend fór fram í annað skipti um liðna helgi. Hátíðin gekk vel og var iðandi mannlíf á götum og börum bæjarins þar sem fólk gekk á milli og smakkaði á kokteilum  í leit að þeim besta. Sex barir tóku þátt í keppninni og hönnuðu þeir allir kokteil í tilefni helgarinnar; Fosshótel Stykkishólmur,…Lesa meira

true

Sverrir fór holu í höggi

Sverrir Karlsson golfspilari í Grundarfirði var á föstudaginn að spila á Bárarvelli. Á fjórðu holu gerði hann sér lítið fyrir og fór holu í höggi. „Það var sælutilfinning að sjá kúluna í holunni. Brautin er 106 metrar. Ég notaði 7-tré,“ sagði Sverrir hinn ánægðasti.Lesa meira

true

„Vöfflurnar eru orðnar okkar aðalsmerki“

„Núna er fjórða sumarið okkar og gestunum hefur fjölgað jafnt og þétt frá ári til árs,“ segir Kolbrún Freyja í samtali við Skessuhorn, en hún rekur ásamt Rósu Björk kaffihúsið Skemmuna á Hvanneyri. „Við erum í elsta húsinu á Hvanneyri. Upphaflega var það byggt sem skemma fyrir Hvanneyrarbúið. Prestinum sem var þá fannst ekki við…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik í Opna bandaríska í kvöld

Í kvöld hefur Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, leik á sínu fyrsta risamóti, Opna bandaríska meistaramótinu. Mótið fer fram á Trump National vellinum í Bedminster í New Jersey-fylki og allir bestu kvenkylfingar heims eru mættir til leiks. Gengið hefur verið frá rástímum fyrir mótið og mun Valdís hefja leik tíma á fyrsta teig kl.…Lesa meira

true

Þverá rauf þúsund laxa múrinn í gær

Í gærkvöldi var kominn 1001 lax á land úr Þverá og Kjarará og er veiðin 13. júlí nánast á pari við fyrri hluta sumarsins síðasta ár þegar reyndar smálaxinn vantaði. Einnig er veiðin nú svipuð og hún var hið góða veiðisumar 2005. Í fyrra var góð veiði fyrri hluta sumars en dalaði þegar leið á…Lesa meira

true

Veiðiþjófar gómaðir við laxveiði með aðstoð dróna

Tveir menn voru í gærkvöldi staðnir að verki þar sem þeir höfðu landað laxi úr veiðistaðnum Efra-Rauðabergi ofarlega í Kjarará án þess að hafa veiðileyfi. Veiðistaður þessi er með þeim efstu sem veiðimenn í Kjarará reyna fyrir sér á, en þangað er talsverð ganga neðan frá Gilsbakkaeyrum. Hvergi á landinu gengur lax jafn langt frá…Lesa meira

true

Bríet Lilja í Skallagrím

Bríet Lilja Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við Skallagrím og mun leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í vetur. Bríet er 19 ára gömul og kemur frá Sauðárkróki. Hún á að baki leiki fyrir meistaraflokka Tindastól og Þór Ak., auk þess að hafa leikið með yngri landsliðum Íslands (U15, U16 og U18).…Lesa meira