Fréttir

true

ÍA hefur samið við þrjá leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA gekk nýverið frá samningum við þrjá leikmenn; miðjumennina Guðmund Böðvar Guðjónsson og Iain Williamson og sóknarmanninn Stefán Ómar Magnússon, en þeir fyrrnefndu eru stuðningsmönnum félagsins kunnir. Guðmundur Böðvar lék með ÍA seinni hluta síðasta sumars á láni frá Fjölni, þar sem hann hefur verið síðan 2013. Hann eru uppalinn hjá ÍA og lék…Lesa meira

true

Eyjólfur tekur við svæðisstjórastarfi hjá Arion banka

Bernhard Þór Bernhardsson svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi hefur verið ráðinn sem sviðsstjóri vöruþróunar og netviðskipta á viðskiptabankasviði bankans og hefur þegar hafið störf þar. Eyjólfur V. Gunnarsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns fyrirtækjaviðskipta á Vesturlandi, hefur verið ráðinn sem svæðisstjóri og hefur einnig hafið störf sem slíkur. Eyjólfur hefur starfað á Vesturlandi síðan 2009…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar samþykktu nýjan kjarasamning

Skrifað var undir nýjan kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara 29. nóvember síðastliðinn. Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara samþykkti nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu sem hófst mánudaginn 5. desember og lauk klukkan 16:00 í dag. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 55,12% sögðu Já, en 42,9% sögðu Nei. Auðir seðlar komu frá 1,98%. Á kjörskrá…Lesa meira

true

Valdís Þóra aðeins feti frá Evrópumótaröðinni

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi komst áfram á lokaúrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina, sterkustu mótaröð Evrópu. Valdís lék lokahringinn á úrtökumótinu, sem fram fór í Marokkó, á 75 höggum, eða samtals þremur yfir pari. Samtals lék hún hringina fjóra á 12 höggum yfir pari og endaði í 12.-13. sæti á mótinu, en…Lesa meira

true

Skallagrímskonur gersigruðu Hauka

Skallagrímur og Haukar mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var að Ásvöllum og skemmst er frá því að segja að Skallagrímskonur gerðu afar góða ferð í Hafnarfjörðinn. Þær gersamlega völtuðu yfir Haukaliðið sem virtist aldrei hafa haft trú á verkefninu. Það var sama til hvaða þáttar leiksins var litið, hvergi komust…Lesa meira

true

Snæfellskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Stjörnunni

Íslandsmeistarar Snæfells mættu Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Pálína Gunnlaugsdóttir er fjarri góðu gamni vegna meiðsla, en meiðsli sem hún varð fyrir í landsleik Íslands og Slóvakíku í byrjun nóvember tóku sig upp að nýju. Mun hún af þeim sökum hvíla þar til á nýja árinu. En leikurinn á laugardag fór fram í…Lesa meira

true

Toppliðið of stór biti fyrir Skagamenn

ÍA tók á móti toppliði Hattar í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag og urðu að játa sig sigraða gegn sterku liði Hattarmanna. Gestirnir voru betri frá fyrstu mínútu og unnu að lokum öruggan sigur, 66-104. Höttur náði yfirhöndinni snemma leiks og hafði átta stiga forystu eftir upphafsfjórðunginn, 16- 24. Þeir bættu lítillega við…Lesa meira

true

Hafnasambandið dregur fögnuð sinn til baka

Stjórn Hafnasambands Íslands hefur sent þingmönnum opið bréf þar sem skorað er á Alþingi að veita hærri upphæð á fjárlögum til endurbóta á höfnum landsins. Til hafnbótasjóðs er áætlað að verja 212 milljónum króna á fjárlögum 2017, sem er 400 milljóna króna lækkun frá árinu 2016. Í nýsamþykktri samgönguáætlun er hins vegar gert ráð fyrir…Lesa meira

true

Vestlensk slökkvilið í tveimur útköllum

Tvö útköll bárust slökkviliðum á Vesturlandi í gær. Það fyrra var að húsi við Suðurgötu á Akranesi um miðjan daginn og reyndist minniháttar. Húsráðandi hafði verið að afþýða frystikistu og beitti til þess óhefðbundinni aðferð sem slökkviliðsmenn mæla ekki með, eða hárblásara. Síðara útkallið fékk Slökkvilið Grundarfjarðar um kvöldið. Kviknað hafði í elhúsviftu í einbýlishúsi…Lesa meira

true

Skallagrímssigur eftir dramatískar lokamínútur

Skallagrímur fór suður til Þorlákshafnar að kvöldi föstudags og mætti Þór í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Leikurinn var jafn og spennandi að heita frá upphafi til enda en eftir dramatískar lokamínútur voru það Skallagrímsmenn sem höfðu tveggja stiga sigur, 74-76. Skallagrímur hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og er liðið komið á…Lesa meira