Fréttir

true

Héldu styrktarmót í pílu

Síðastliðinn laugardag fór fram styrktarmót Keilusalarins á Akranesi og SF Arena í pílu. Fjórtán pör öttu þar kappi í tvenndarleik. Keppnisgjaldið rann óskipt til stuðnings Krabbameinsfélags Akraness og nærsveita. Úrslit urðu þau að fyrsta sætið hrepptu þau Ólafur Már Jónsson og María Hlíf Þorsteinsdóttir. Annað sætið kom í hlut þeirra Heiðrúnar Láru Tómadóttur og Jóns…Lesa meira

true

Skæð fuglainflúensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Fyrir skömmu bárust Matvælastofnun ábendingar um dauða fugla á höfuðborgarsvæðinu. Fannst rauðhöfðaönd við Tjörnina í Reykjavík og álft við Ögurhvarf í Kópavogi. Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N1. Þetta staðfesti Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum í gær. Sama afbrigði skæðrar fuglainflúensuveiru H5N1 greindist síðast í júlí 2023 í…Lesa meira

true

Landa kolmunna áður en haldið verður á loðnuslóðir

Á sjöunda tímanum í gærkveldi kom Víkingur AK með kolmunna til bræðslu á Akranesi. Aflinn fékkst á miðunum austan við Færeyjar. Á heimsiglingunni var komið við í Reykjavík um helgina og ný nót tekin um borð. Beðið var með löndun á Akranesi þar sem Venus var fyrir á fleti. Eftir að búið verður að landa…Lesa meira

true

Heiðar og félagar sigurvegarar í sveitakeppni BB

Í gærkveldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var fjögur kvöld með þátttöku tíu sveita. Röðun í sveitir byggði á árangri í aðaltvímenningi félagsins. Keppnin var spennandi en þegar líða tók á mótið voru nokkrar sveitir sem skáru sig úr. Að endingu var það sveit Heiðars sem bar sigur úr býtum með 131,9 stig.…Lesa meira

true

Salka – ástin og dauðinn

Unnur Ösp flytur einleik um verk Laxness í Landnámssetrinu í Borgarnesi Verk Unnar er eins og heiti þess gefur til kynna byggt á skáldsögu Halldórs Laxness um Sölku Völku. Fyrri hluti þess verks kom út árið 1931 undir heitinu Þú vínviður hreini og leikverk Unnar byggist á þeim hluta. Fuglinn í fjörunni kom út árið…Lesa meira

true

Varðskipið Þór í tilefni af 100 afmælis LHG

Landhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni mun Gæslan bjóða þjóðinni um borð í tækjakost stofnunarinnar á árinu. Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðarhafnar snemma á föstudagsmorguninn og var nemendum í Grunnskóla Grundarfjarðar boðið um borð. Á laugardeginum var svo öllum boðið að koma og skoða þetta glæsilega skip og voru ófáir…Lesa meira

true

Aðkomutáknið komið á sinn stað í Búðardal

Árið 2024 auglýsti Dalabyggð eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem bjóða myndi fólk velkomið sem kemur akandi að sunnan inn í Búðardal. Tilkynnt var um niðurstöðu um val á verki á þjóðhátíðardaginn 2024. „Það er Svavar Garðarsson íbúi í Búðardal, sem ættaður er frá Hríshóli í Reykhólasveit, sem hannaði aðkomutáknið og fer vel á…Lesa meira

true

Edrúvika hafin til stuðnings Krýsuvíkursamtökunum

Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu: „Drekkum minna – gefum meira“. „Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík, flest þeirra ungt fólk í miklum vanda. Markmið samtakanna er að stytta þessa biðlista á næstu árum, sem krefst aukins fjármagns…Lesa meira

true

Fyrsti fundur í Farsældarráði Vesturlands

Fyrsti fundur í Farsældarráði Vesturlands var haldinn að Garðavöllum á Akranesi fimmtudaginn 22. janúar. Farsældarráð Vesturlands var formlega stofnað 1. október á síðasta ári. Í því eiga sæti fulltrúar frá sveitarfélögunum á Vesturlandi, fulltrúar þeirra ríkisstofnanna sem eru á Vesturlandi, fulltrúi frá Svæðisstöð íþróttahéraða og fulltrúar frá Ungmennaráði Vesturlands. Farsældarráð vinnur í samræmi við farsældarlög…Lesa meira

true

Átthagastofa Snæfellsbæjar rifin

Snæfellsbær hefur í hyggju að rífa hús Átthagastofu Snæfellsbæjar að Kirkjutúni 2 í Ólafsvík. Félag um Átthagastofa Snæfellsbæjar var á sínum tíma stofnað um þróunarverkefni að koma á fót samfélagsmiðstöð þar sem hægt væri að vinna að uppbyggjandi verkefnum fyrir samfélagið. Félaginu var slitið fyrir nokkrum árum enda voru verkefni þess þá flest komin í…Lesa meira