
Edrúvika hafin til stuðnings Krýsuvíkursamtökunum
Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu: „Drekkum minna – gefum meira“.
„Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík, flest þeirra ungt fólk í miklum vanda. Markmið samtakanna er að stytta þessa biðlista á næstu árum, sem krefst aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis verða Krýsuvíkursamtökin í stakk búin til að taka á móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega,“ segir í tilkynningu.
„Árið 2026 markar 40 ára afmælisár Krýsuvíkur. Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að eflingu starfsins með betur menntuðum ráðgjöfum og samstarfi við fremstu meðferðarstöðvar í Bandaríkjunum. Árangurinn er skýr; um 70% þeirra sem ljúka sex mánaða meðferð eru edrú tveimur árum síðar og snúa aftur út í samfélagið, jafnt í nám eða störf.
Í Edrú vikunni eru landsmenn hvattir til að sleppa áfengi og gefa í staðinn andvirðið til Krýsuvíkur. Þátttaka er einföld og boðið verður upp á tvo möguleika; hringja í 9021707 þar sem dregið er af símareikningi kr. 4500 sem nemur andvirði 12 bjóra eða greiða í gegnum www.edruvika.is þar er boðið upp á þrjár leiðir; andvirði rauðvíns/hvítvíns kr. 3.500, andvirði 12 bjóra kr. 4.500 og andvirði sterkrar áfengisflösku kr. 7.500. Fjöldi þekktra Íslendinga ásamt fjölmiðlum munu styðja átakið á meðan það stendur yfir. Björgum mannslífum og tryggjum ungu kynslóðinni bjartari framtíð,“ segir í tilkynningu.