Sigursveitir í aðalsveitakeppninni. Fremst er sveit Heiðars og liðsfélagar hans síðasta keppniskvöldið. Á myndina vantar því Böðvar Björnsson og Unnstein Arason.

Heiðar og félagar sigurvegarar í sveitakeppni BB

Í gærkveldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var fjögur kvöld með þátttöku tíu sveita. Röðun í sveitir byggði á árangri í aðaltvímenningi félagsins. Keppnin var spennandi en þegar líða tók á mótið voru nokkrar sveitir sem skáru sig úr. Að endingu var það sveit Heiðars sem bar sigur úr býtum með 131,9 stig. Sveitina skipuðu Heiðar Árni Baldursson, Logi Sigurðsson, Alfreð Þór Alfreðsson, Jón Ágúst Þorsteinsson, Böðvar Björnsson og Unnsteinn Arason. Í öðru sæti með 118,56 stig urðu Einarssynir, en sveitina skipuðu þeir Guðmundur Ólafsson, Hallgrímur Rögnvaldsson, bræðurnir Konráð og Kristinn Einarssynir og Jóhann Ólafsson. Loks í þriðja sæti með 107,10 stig var sveitin Dr. Anna. Hana skipuðu Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir, Magnús B Jónsson, Kristján Gíslason, Karl Alfreðsson og Tryggvi Bjarnason. Þau Anna Heiða og Ingimundur báru einnig sigur úr býtum í Butlernum, náðu bestum árangri einstakra para á mótinu. Í öðru sæti varð Heiðar Árni Baldursson, þriðju urðu Alfreð Þór Alfreðsson og Jón Ágúst Þorsteinsson, fjórðu voru Guðmundur Ólafsson og Hallgrímur Rögnvaldsson og í fimmta sæti Unnsteinn Arason.