Veðrið skartaði sínu fegursta um helgina og speglaðist skipið glæsilega í haffletinum. Ljósmyndir: tfk

Varðskipið Þór í tilefni af 100 afmælis LHG

Landhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni mun Gæslan bjóða þjóðinni um borð í tækjakost stofnunarinnar á árinu. Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðarhafnar snemma á föstudagsmorguninn og var nemendum í Grunnskóla Grundarfjarðar boðið um borð. Á laugardeginum var svo öllum boðið að koma og skoða þetta glæsilega skip og voru ófáir sem kíktu í heimsókn og skoðuðu skipið hátt og lágt og fræddust um starfsemi Gæslunnar.