
Víkingur AK er hér að mjakast inn til hafnar á Akranesi á sjöunda tímanum í gærkveldi. Ljósm. mm
Landa kolmunna áður en haldið verður á loðnuslóðir
Á sjöunda tímanum í gærkveldi kom Víkingur AK með kolmunna til bræðslu á Akranesi. Aflinn fékkst á miðunum austan við Færeyjar. Á heimsiglingunni var komið við í Reykjavík um helgina og ný nót tekin um borð. Beðið var með löndun á Akranesi þar sem Venus var fyrir á fleti. Eftir að búið verður að landa kolmunnanum mun skipið halda til loðnuveiða suðaustur af landinu. Þegar hrognafylling verður orðin nægjanleg verður aflanum landað á Akranesi þar sem stefnt er að hrognafrystingu.