Veiran hefur verið greind í dauðri álft og rauðhöfðaönd á höfuðborgarsvæðinu.

Skæð fuglainflúensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Fyrir skömmu bárust Matvælastofnun ábendingar um dauða fugla á höfuðborgarsvæðinu. Fannst rauðhöfðaönd við Tjörnina í Reykjavík og álft við Ögurhvarf í Kópavogi. Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N1. Þetta staðfesti Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum í gær.