Fréttir

true

Heiðar og félagar sigurvegarar í sveitakeppni BB

Í gærkveldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var fjögur kvöld með þátttöku tíu sveita. Röðun í sveitir byggði á árangri í aðaltvímenningi félagsins. Keppnin var spennandi en þegar líða tók á mótið voru nokkrar sveitir sem skáru sig úr. Að endingu var það sveit Heiðars sem bar sigur úr býtum með 131,9 stig.…Lesa meira

true

Salka – ástin og dauðinn

Unnur Ösp flytur einleik um verk Laxness í Landnámssetrinu í Borgarnesi Verk Unnar er eins og heiti þess gefur til kynna byggt á skáldsögu Halldórs Laxness um Sölku Völku. Fyrri hluti þess verks kom út árið 1931 undir heitinu Þú vínviður hreini og leikverk Unnar byggist á þeim hluta. Fuglinn í fjörunni kom út árið…Lesa meira

true

Varðskipið Þór í tilefni af 100 afmælis LHG

Landhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni mun Gæslan bjóða þjóðinni um borð í tækjakost stofnunarinnar á árinu. Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðarhafnar snemma á föstudagsmorguninn og var nemendum í Grunnskóla Grundarfjarðar boðið um borð. Á laugardeginum var svo öllum boðið að koma og skoða þetta glæsilega skip og voru ófáir…Lesa meira

true

Aðkomutáknið komið á sinn stað í Búðardal

Árið 2024 auglýsti Dalabyggð eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem bjóða myndi fólk velkomið sem kemur akandi að sunnan inn í Búðardal. Tilkynnt var um niðurstöðu um val á verki á þjóðhátíðardaginn 2024. „Það er Svavar Garðarsson íbúi í Búðardal, sem ættaður er frá Hríshóli í Reykhólasveit, sem hannaði aðkomutáknið og fer vel á…Lesa meira

true

Edrúvika hafin til stuðnings Krýsuvíkursamtökunum

Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu: „Drekkum minna – gefum meira“. „Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík, flest þeirra ungt fólk í miklum vanda. Markmið samtakanna er að stytta þessa biðlista á næstu árum, sem krefst aukins fjármagns…Lesa meira

true

Fyrsti fundur í Farsældarráði Vesturlands

Fyrsti fundur í Farsældarráði Vesturlands var haldinn að Garðavöllum á Akranesi fimmtudaginn 22. janúar. Farsældarráð Vesturlands var formlega stofnað 1. október á síðasta ári. Í því eiga sæti fulltrúar frá sveitarfélögunum á Vesturlandi, fulltrúar þeirra ríkisstofnanna sem eru á Vesturlandi, fulltrúi frá Svæðisstöð íþróttahéraða og fulltrúar frá Ungmennaráði Vesturlands. Farsældarráð vinnur í samræmi við farsældarlög…Lesa meira

true

Átthagastofa Snæfellsbæjar rifin

Snæfellsbær hefur í hyggju að rífa hús Átthagastofu Snæfellsbæjar að Kirkjutúni 2 í Ólafsvík. Félag um Átthagastofa Snæfellsbæjar var á sínum tíma stofnað um þróunarverkefni að koma á fót samfélagsmiðstöð þar sem hægt væri að vinna að uppbyggjandi verkefnum fyrir samfélagið. Félaginu var slitið fyrir nokkrum árum enda voru verkefni þess þá flest komin í…Lesa meira

true

Vegagerðin vill rífa sæluhús á Fróðárheiði

Vegagerðin hefur óskað umsagnar Snæfellsbæjar vegna fyrirtætlana um að rífa sæluhúsið á Fróðárheiði. Í erindi Vegagerðarinnar til bæjarfélagsins segir að húsið sé illa á sig komið og því sé hlutverki þess; „í nútíma þjónustu við ferðalanga liðið sem neyðarskýli.“ Þá kemur fram að Vegagerðin stefni á að losa sig við öll mannvirki sem ekki eru…Lesa meira

true

Íslandsmetin falla enn í mjólkurframleiðslunni

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur birt niðurstöður skýrsluhalds í mjólkurframleiðslunni árið 2025. Alls var skilað niðurstöðum um framleiðslu frá 461 búi og hafði þeim fækkað um níu frá árinu áður. „Niðurstöðurnar eru þær helstar að 25.419 árskýr skiluðu 6.615 kg nyt að meðaltali. Það er afurðaaukning um 92 kg/árskú frá árinu 2024 en þá skiluðu 25.104 árskýr…Lesa meira

true

Áhafnir björgunarskipa tóku saman æfingu

Aðstæður til siglinga um sundin voru ákjósanlegar í dag; hægur vindur og hiti um frostmark. Þá töluðu sig saman fulltrúar þriggja björgunarsveita sem reka björgunarkip og héldu æfingu. Auk björgunarskipsins Jóns Gunnlaugssonar í eigu Björgunarfélags Akraness voru á siglingu Fiskaklettur í Hafnarfirði í eigu Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Stefnir úr Kópavogi í eigu Hjálparsveitar Skáta. Meðal…Lesa meira