
Íslandsmetin falla enn í mjólkurframleiðslunni
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur birt niðurstöður skýrsluhalds í mjólkurframleiðslunni árið 2025. Alls var skilað niðurstöðum um framleiðslu frá 461 búi og hafði þeim fækkað um níu frá árinu áður. „Niðurstöðurnar eru þær helstar að 25.419 árskýr skiluðu 6.615 kg nyt að meðaltali. Það er afurðaaukning um 92 kg/árskú frá árinu 2024 en þá skiluðu 25.104 árskýr meðalnyt upp á 6.523 kg. Þetta eru mestu meðalafurðir frá upphafi vega og nú fylla þau ár sem meðalafurðir ná yfir 6.000 kg eftir árskú heilan áratug.“ Meðalbústærð reiknaðist 56,5 árskýr á árinu 2025 en sambærileg tala var 56,1 árið á undan. Meðalbústærð reiknuð í skýrslufærðum kúm var nú 73,7 kýr en 2024 reiknuðust þær 72,6. Samtals voru skýrslufærðar kýr ársins 33.956 talsins samanborið við 34.160 árið áður.