
Áhafnir björgunarskipa tóku saman æfingu
Aðstæður til siglinga um sundin voru ákjósanlegar í dag; hægur vindur og hiti um frostmark. Þá töluðu sig saman fulltrúar þriggja björgunarsveita sem reka björgunarkip og héldu æfingu. Auk björgunarskipsins Jóns Gunnlaugssonar í eigu Björgunarfélags Akraness voru á siglingu Fiskaklettur í Hafnarfirði í eigu Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Stefnir úr Kópavogi í eigu Hjálparsveitar Skáta. Meðal annars var siglt inn í höfnina á Akranesi og gátu menn miðlað þekkingu. Heimamenn buðu svo gestunum í kaffi og hressingu áður en haldið var út á sundin að nýju.