Fréttir

true

Byrjaði 11 ára að vinna í uppvaski inni í eldhúsi

Rætt við Þorberg Helga Sæþórsson aðstoðarhótelstjóra og veitingastjóra á Fosshótel Stykkishólmi Þorbergur Helgi Sæþórsson er lærður matreiðslumaður. Árið 2012 fór hann á samning á Hótel Holti í Reykjavík en kláraði svo samning hjá föður sínum, Sæþóri Heiðar Þorbergssyni, veitingamanni á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi. Blaðamaður Skessuhorns hitti Þorberg að máli. Metnaður við að gera vel ber…Lesa meira

true

Ráðin í stöður forstjóra tveggja ríkisstofnana

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. Alþingi samþykkti í júlí frumvörp um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun. Ný Umhverfis- og orkustofnun tekur við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar, en Náttúruverndarstofnun tekur við Vatnajökulsþjóðgarði og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar…Lesa meira

true

Frítt verður í landsbyggðarstrætó á sunnudaginn

Dagana 16. – 22. september verður samgönguvika haldin um land allt en borgir og bæir á Íslandi hafa tekið þátt í Evrópsku samgönguvikunni frá árinu 2002. Samgönguvikan er samstillt átak sveitarfélaga í Evrópu og er ætlað að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með átakinu hér á landi. Markmið vikunnar er…Lesa meira

true

Snorrastofa í Istanbúl

Snorrastofa hefur undanfarin ár þróað samstarf við ýmsar erlendar stofnanir, m.a. Háskólann í Tbilisi í Georgíu, The Thoreau Society í Bandaríkjunum, háskólana í Edinborg, York, Björgvin, Osló og Gautaborg, kastalabæinn Gradara á Ítalíu og sænskar rannsóknarstofnanir í Istanbúl og Jerúsalem. Samvinnan hefur getið af sér verkefni, sem gagnast hafa í því sem nefna má útbreiðslustarfsemi…Lesa meira

true

Nýr lektor í deild Náttúru og skóga á Hvanneyri

Dr. Susanne Claudia Möckel hefur verið ráðin í stöðu lektors við deild Náttúru og skóga við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Susanne er með BS, MS og PhD gráður í landfræði frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún lokið hlutanámi í umhverfisverkfræði frá BOKU í Austurríki. Sérsvið hennar og rannsóknarverkefni eru á sviði jarðvegsfræði á Íslandi.…Lesa meira

true

Aðstaðan bætt á Saxhóli

Snæfellsjökulsþjóðgarður hefur tilkynnt á heimasíðu sinni að stefnt er að framkvæmdum á Saxhóli, dagana 18. – 22. september. Svæðið verður lokað allri umferða á meðan framkvæmdum stendur en lokið verður við frágang á útsýnispalli upp á gígnum en einnig verða settir niður setbekkir á miðju útsýnispallsins og steinþrep hlaðin niður á pallinum ásamt því að…Lesa meira

true

Tekinn á 168 km hraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 64 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 168 km/klst. þar sem hámarkshraði er 90 km. Nokkrir ökumenn voru svo og kærðir fyrir símanotkun undir stýri. Fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur í liðinni viku. Hjólbarði datt…Lesa meira

true

Eigendaskipti á versluninni @home á Akranesi

Um helgina urðu eigendaskipti á versluninni @home sem er til húsa á Kirkjubraut 56 á Akranesi. Hjónin Anna María Þórðardóttir og Guðmundur Ingþór Guðjónsson hafa keypt reksturinn af þeim Elínu Dröfn Valsdóttur og Þórði Emil Ólafssyni sem staðið hafa vaktina síðastliðin tólf ár. Anna María hafði unnið á skrifstofu ÞÞÞ á Akranesi síðastliðin 25 ár…Lesa meira

true

Bleikur dagur í minningu Bryndísar Klöru

Þemavika er í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði vikuna 16.-20. september og hófst hún á mánudaginn þar sem kókosbollukeppni var samhliða hefðbundinni kennslu. Bleikur dagur var á mánudaginn í minningu Bryndísar Klöru og voru nemendur og starfsmenn duglegir að mæta í einhverju bleiku í tilefni dagsins. Fjölmargir viðburðir og leikir verða í vikunni eins og ratleikur…Lesa meira

true

Taka þátt í leit að manni sem saknað er við Vík

Drónahópar og gönguhópar björgunarsveita á Vesturlandi voru í gærkvöldi kallaðir til aðstoðar björgunarsveitum á Suðurlandi við leit að manni sem saknað er. Síðast var vitað um ferðir mannsins við Vík í Mýrdal klukkan 3 aðfararnótt mánudags. Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hans eftir þann tíma eru þeir beðnir að hafa samband við 112. Maðurinn…Lesa meira