Þórður Emil, Elín Dröfn, Anna María og Ingþór við eigendaskiptin. Ljósm. aðsend

Eigendaskipti á versluninni @home á Akranesi

Um helgina urðu eigendaskipti á versluninni @home sem er til húsa á Kirkjubraut 56 á Akranesi. Hjónin Anna María Þórðardóttir og Guðmundur Ingþór Guðjónsson hafa keypt reksturinn af þeim Elínu Dröfn Valsdóttur og Þórði Emil Ólafssyni sem staðið hafa vaktina síðastliðin tólf ár. Anna María hafði unnið á skrifstofu ÞÞÞ á Akranesi síðastliðin 25 ár og langaði að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt. „Ég fór að skoða í kringum mig og athuga hvað væri í boði. Síðan fóru hlutirnir að rúlla og hér er ég í dag.“

Eigendaskipti á versluninni @home á Akranesi - Skessuhorn