
Nemendur og starfsfólk stilltu sér upp fyrir neðan skólann á bleika deginum á mánudaginn. Ljósm. tfk
Bleikur dagur í minningu Bryndísar Klöru
Þemavika er í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði vikuna 16.-20. september og hófst hún á mánudaginn þar sem kókosbollukeppni var samhliða hefðbundinni kennslu. Bleikur dagur var á mánudaginn í minningu Bryndísar Klöru og voru nemendur og starfsmenn duglegir að mæta í einhverju bleiku í tilefni dagsins. Fjölmargir viðburðir og leikir verða í vikunni eins og ratleikur nýnema, plankakeppni, tortillakeppni svo eitthvað sé nefnt. Forvarnardagur FSN verður miðvikudaginn 18. september í samvinnu við viðbragðsaðila á svæðinu. Nemendafélagið heldur svo nýnemaball á fimmtudag og verður eflaust kátt á hjalla þar. Nemendur úr framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta og taka þátt í herlegheitunum í FSN.