Taka þátt í leit að manni sem saknað er við Vík

Drónahópar og gönguhópar björgunarsveita á Vesturlandi voru í gærkvöldi kallaðir til aðstoðar björgunarsveitum á Suðurlandi við leit að manni sem saknað er. Síðast var vitað um ferðir mannsins við Vík í Mýrdal klukkan 3 aðfararnótt mánudags. Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hans eftir þann tíma eru þeir beðnir að hafa samband við 112. Maðurinn sem saknað er heitir Illes Benedek Incze og er á meðfylgjandi mynd frá Lögreglunni á Suðurlandi. Björgunarsveitir notast meðal annars við sporhunda og dróna við leitina. Leitarskilyrði voru ekki ákjósanleg í nótt; dimmt, þoka og súld.

Taka þátt í leit að manni sem saknað er við Vík - Skessuhorn