Sigrún Ágústsdóttir verður forstjóri Náttúruverndarstofnunar og Gestur Pétursson forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar.

Ráðin í stöður forstjóra tveggja ríkisstofnana

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. Alþingi samþykkti í júlí frumvörp um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun. Ný Umhverfis- og orkustofnun tekur við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar, en Náttúruverndarstofnun tekur við Vatnajökulsþjóðgarði og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar auk lífríkis og veiðistjórnunarhluta hennar.

Ráðin í stöður forstjóra tveggja ríkisstofnana - Skessuhorn