
Síðasta mánudag komu í heimsókn til Snæfellsbæjar bæjarstjóri og bæjarfulltrúar frá Vestmanna, vinabæ Snæfellsbæjar í Færeyjum. Heimsóknir hafa verið reglulegar undanfarin ár, að undanskildum covid árunum, en þetta er fyrsta vinabæjarheimsóknin síðan fyrir faraldurinn. Fram kemur á vef Snæfellsbæjar að gestirnir fóru víða um bæjarfélagið með bæjarfulltrúum Snæfellsbæjar og fengu góða leiðsögn og góðan mat…Lesa meira








