Fréttir

true

Ég er eins manns deild – segir gagnavörðurinn Benedikt

Benedikt Vilborgar og Jóhannesson ólst upp í Búðardal og býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Hörðudal í Dölum. Benedikt vinnur sem gagnavörður (e.DIT) og hefur fyrirtæki hans, DIT Iceland unnið að mörgum af stærstu þáttaröðum og kvikmyndum sem teknar hafa verið upp á Íslandi. Nýverið vann hann að þáttaröðinni True Detective, kvikmyndinni Heart of Stone…Lesa meira

true

Vantar svörun frá Snæfellsnesi við þjónustukönnun Byggðastofnunar

„Ertu stanslaust á ferðinni til að sækja þér nauðsynlega þjónustu? Hvernig er aðgengi og hvert er framboð þjónustu í þínu nærumhverfi?“ Þannig hljóma spurningar sem Byggðastofnun setur fram í þjónustukönnun sem nú er í gangi. Stofnunin hvetur íbúa landsins til að taka þátt í þessari þjónustukönnun þar sem spurt er um þjónustusókn íbúa á landsbyggðinni…Lesa meira

true

Bæjarstjórn staðfestir breytingu deiliskipulags Smiðjuvalla 12-22

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur staðfest tillögu skipulags- og umhverfisráðs að deiliskipulagsbreytingu Smiðjuvalla 12 – 22. Á auglýstum athugasemdatíma við tillöguna bárust fimm umsagnir en engar athugasemdir. Breytingin sameinar í eina lóð Smiðjuvelli 12-22. Stærð sameinaðrar lóðar er 19.800 fermetrar, eða rétt tæpir tveir hektarar. Afmarkast lóðin af Smiðjuvöllum að norðvestan og norðaustan, Þjóðbraut að suðaustan og…Lesa meira

true

Fimm fyrirtæki í alútboði um byggingu knatthúss

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. september sl. var lögð fram niðurstaða forvals fyrir alútboð á byggingu fjölnota íþróttahúss, stundum kallað knatthús, vestan við Skallagrímsvöll í Borgarnesi. Byggðarráð staðfesti að eftirtaldir umsækjendur taka þátt í lokuðu alútboði vegna byggingarinnar: Alverk ehf., Eykt ehf., E.Sigurðsson ehf., Ístak hf. og Sjammi ehf. Samkvæmt vinnslutillögu verður heildarstærð fjölnota íþróttahússins…Lesa meira

true

Konur fyrir konur – Öflugur félagsskapur Vesturlandsdeildar FKA

Aðalfundur Vesturlandsdeildar FKA verður haldinn í dag, fimmtudaginn 12. september klukkan 18, í Landnámssetrinu í Borgarnesi. FKA er félag fyrir konur sem eru ýmist stjórnendur, leiðtogar og/eða starfsmenn í íslensku atvinnulífi. Félagið vinnur með aðilum á vinnumarkaði; fyrirtækjum, félagasamtökum og hinu opinbera að því að efla og benda á þátt kvenna í stjórnum eða stjórnunarstöðum…Lesa meira

true

Vill reka kaffisölu í Stúkuhúsinu

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar í gær var tekið fyrir erindi frá áhugasömum aðila um rekstur kaffisölu á Byggðasafninu í Görðum, nánar tiltekið í Stúkuhúsinu. Menningar- og safnanefnd, stjórn safnsins og Jón Allansson forstöðumaður fögnuðu hugmyndinni og þessu frumkvæði um rekstur kaffisölu í Stúkuhúsi. Veru Líndal Guðnadóttur verkefnastjóra var falið að vinna áfram að…Lesa meira

true

Síðsumarsferð Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum

Síðsumarsferð FaB var farin fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn.  Mæting var við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, en þar tóku á móti okkur Ragnheiður I Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og Rósa Björk Jónsdóttir kynningarfulltrúi skólans með kaffisopa og konfekti. Kynntu þær starfsemi skólans í máli og myndum auk þess sem við röltum um skólabygginguna og tókum tali kennara…Lesa meira

true

Lengri opnunartími og rennibraut möguleg eftir að varmadælurnar koma

Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar Grundarfjarðar 5. september sl. var sagt frá því stóra verkefni sem „orkuskiptin“ eru, en stefnt er að því að hætta að kynda skóla og íþróttamannvirki bæjarins með olíu og fara yfir í varmadæluorku síðar í haust. Orkuskiptin eru stórt verkefni sem unnið hefur verið að síðan 2022 en undirbúning má…Lesa meira

true

Brim býður erlenda starfsfólkinu sínu upp á íslenskukennslu

Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hefur tekið mikilvægt skref í átt að inngildingu innflytjenda með nýstárlegri íslenskukennslu í samstarfi við smáforritið Bara tala. Þetta verkefni er í samræmi við nýjustu ráðleggingar OECD um að bæta verði tungumálakunnáttu innflytjenda á Íslandi og styrkja með því móti stöðu þeirra á vinnumarkaði. Fram hefur komið að íslenskukunnátta er lægst meðal innflytjenda…Lesa meira

true

Vel heppnuð ferð eldri félagsmanna hjá VLFA

Síðasta fimmtudag var farin hin árlega ferð þar sem Verkalýðsfélag Akraness býður eldri félagsmönnum í dagsferð. Tæplega 50 eldri félagsmenn þáðu boð félagsins og komu með í þessa ferð sem heppnaðist eins og ætíð mjög vel en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins. Í árlegri ferð eldri félaga var farið að þessu sinni vestur á…Lesa meira