
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Flatey í Breiðafirði. Flatey var friðlýst sem friðland árið 1975, en árið 2021 var friðlýsingin endurskoðuð og friðlandið stækkað. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda. Friðlandið hefur hátt vísinda- og…Lesa meira








