
Náttúrufræðistofnun verður staðsett á Vesturlandi
Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu ráðuneytisins. Embætti forstjóra nýrra stofnana verða auglýst um helgina og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar hafa aðsetur á Akureyri, forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og forstjóri nýrrar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verða eftir sem áður á Höfn í Hornafirði, en þær voru færðar þangað árið 2022.