Guðrún á Glitstöðum ásamt hluta prjónahópsins. Yfirleitt mæta 10-12 í hvert skipti en komið er saman einu sinni í viku. Ljósm. aðsend

Prjónahópur á Bifröst færði Vökudeild Landspítalans hlýja gjöf

Undanfarna tvo vetur hefur hópur fólks komið saman á Bifröst til að prjóna. Fyrir verkefninu stóð Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Prjónahópur þessi á Bifröst var skipaður erlendum íbúum sem búsettir eru á Bifröst og flóttafólki. „Við ákváðum í vetur að prjóna húfur og teppi fyrir vökudeild Landspítalans og svo fyrir sambærilega deild á spítala í Úkraínu. Við prjónuðum 50 húfur og 37 teppi og var þessu skipt bróðurlega milli landanna tveggja,“ segir Guðrún. Verkefnið var einnig hugsað í öðrum tilgangi en að prjóna og eiga góða samveru. Samskipti fóru að mestu fram á íslensku og var hittingur þessi öðrum þræði hugsaður til að fólk af erlendu bergi brotið gæti æft sig og slípast í íslensku máli.

Prjónahópur á Bifröst færði Vökudeild Landspítalans hlýja gjöf - Skessuhorn